153. löggjafarþing — 16. fundur,  13. okt. 2022.

húsaleigulög.

272. mál
[12:20]
Horfa

innviðaráðherra (Sigurður Ingi Jóhannsson) (F) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég held að trúverðugleikinn sé gríðarlega mikill, enda höfum við nánast alltaf staðið með yfirlýsingum sem voru gerðar í tengslum við lífskjarasamninginn, þar á meðal að koma með þetta mál hingað til þingsins. Það hefur því miður ekki hlotið afgreiðslu í þessari einföldu mynd, sem snýst fyrst og fremst um skráningarskylduna og síðan þau tvö atriði sem ég nefndi varðandi bættar brunavarnir sem við tókum með okkur í reynslubankann eftir hinn hræðilega eldsvoða á Bræðraborgarstíg, að breyta lögum þar að lútandi. Ég treysti því og vona að þingið taki þetta vel og hratt til skoðunar.

Það er alveg rétt að stærsti þátturinn í því að bæta þennan markað er að fjölga búsetuúrræðum á leigumarkaði. Það er eitt af þeim áhersluatriðum sem við erum með en hin atriðin eru líka mikilvæg. Ef við ætlum að fara að breyta einhverju fleiru í húsaleigulögunum þá er það forsenda að við vitum meira um þann markað. Þessi löggjöf myndar grunninn að því að fá þær upplýsingar.