húsaleigulög.
Virðulegur forseti. Þau atriði er hv. þingmaður las upp úr umsögn Samtaka leigjenda er held ég hv. þingmaður meðvitaður um, sem fulltrúi í velferðarnefnd, að eru á málaskrá ráðherrans í vetur, þar á meðal heimild til sveitarfélaganna um að gera kröfur um blandaða byggð og alls konar ólíkar tegundir íbúðabyggða, svokallað Carlsberg-ákvæði. Þannig að það er enginn bilbugur á ríkisstjórninni eða ráðherranum sem hér stendur hvað það varðar að koma með þau mál og verið að undirbyggja það. Slíkt mál kemur inn til þingsins í vetur. Ég held nú reyndar að þetta mál hafi komið til þingsins 1. apríl sl. Ráðherrann fékk ekki tækifæri til að mæla fyrir því fyrr en í maí af ýmsum öðrum orsökum en ráðherrann hefði gjarnan viljað mæla fyrir því fyrr. 1. apríl var vissulega fullseint, ég tek undir það.
Það er engin spurning um vilja okkar til að gera vel á þessu sviði. Þetta mál er orðið eins einfalt og hægt er því að það er svo mikilvægt að fá það fram áður en við förum að leggja fram einhverjar tillögur sem eru að því leytinu vanhugsaðar, vanreifaðar að við höfum ekki nægileg gögn á bak við þær breytingar. Það er rétt, breytingar inn á markað sem stjórnast af markaðsaðilum geta orðið mjög alvarlegar og neikvæðar fyrir einmitt leigjendur, fyrir leigjendamarkaðinn. Við verðum að vanda okkur. Við erum með starfshóp að störfum sem er að skoða ólíkar leiðir í ólíkum löndum en er auðvitað fyrst og fremst að bíða eftir því að fá upplýsingar úr þessum gagnagrunni sem þessi löggjöf myndi veita okkur.