húsaleigulög.
Virðulegi forseti. Hér kemur hv. þingmaður inn á atriði sem er mjög stórt og mikilvægt og ég þakka honum kærlega fyrir að vekja athygli á því og velta upp þeirri spurningu hvort ríkisvaldið, í þessu tilfelli ríkisstjórn eða stjórnarflokkar, Alþingi, löggjafinn, gefi of mikil fyrirheit við gerð kjarasamninga o.s.frv. Ég hygg að við ættum að eiga þetta samtal hér, bæði í þingsal og í þingnefndum, og gefa okkur góðan tíma vegna þess að ég óttast að við séum komin þar á ákveðnar villibrautir. Það á ekki við um þessa ríkisstjórn sérstaklega heldur yfir höfuð og þetta er þróun sem hefur átt sér stað lengi. Ég hygg að þegar ríkisvaldið gefur með einhverjum hætti ákveðin fyrirheit — það geta verið skynsamleg rök fyrir því til að binda endahnútinn á að kjarasamningar náist, þ.e. skynsamlegir kjarasamningar — þá hef ég oft verið þeirrar skoðunar að menn hafi gengið of langt, hafi gefið vilyrði eða fyrirheit of snemma, haft afskipti af frjálsum kjarasamningum með þeim hætti að ábyrgðin hefur verið tekin frá atvinnurekendum og verkalýðshreyfingunni á því að komast að niðurstöðu, skynsamlegum kjarasamningum. Það breytir ekki hinu að aðstæður kunna að vera þannig að það sé skynsamlegt og rétt, líkt og var gert í lífskjarasamningunum, að á lokahnykk kjarasamninga geti ríkisvaldið með skynsamlegum hætti stigið inn til að tryggja að kjarasamningar náist, kjarasamningar sem byggja á raunverulegum efnahagslegum forsendum.