húsaleigulög.
Virðulegi forseti. Hér hefur auðvitað hver nokkuð til síns máls. Hér var nefnt áðan að það væri mikið ójafnvægi á milli leigjenda og leigusala og það blasir auðvitað við að það er mikið ójafnvægi á milli þeirra sem eiga eignir, eru ríkir, og þeirra sem eru fátækir. Þetta er ein birtingarmynd þess. Sumir eiga íbúðir og geta leigt þær út og aðrir eru háðir vilja þeirra til að leigja og þar fram eftir götunum. Ég er ekki í prinsippinu fylgjandi mjög mikilli aukningu búrókrasíunnar en ég held að í tilfelli húsaleigumarkaðarins, sem er í óttalegri krísu, væri heilbrigt að til væri gagnagrunnur þannig að maður gæti fylgst með þróun markaðarins og hvernig hann er staddur frá einum tíma til annars. Ég er ekki fylgjandi sektarákvæðum eða refsingum til viðbótar við það sem við erum nú þegar með. Ég held að það sé út af fyrir sig heilbrigt að hafa einhvern grunn og skrá yfir hlutina en ekki að fara að gera það að einhverju lögbroti ef þú gerir það ekki. Við erum auðvitað með þinglýsingarferlið allt saman.
Sú staða sem blasir við í dag er að það er hálfgert neyðarástand á leigumarkaði og þeim er vorkunn sem þurfa að reiða sig á þennan markað. Ég held að það tengist að stórum hluta þeirri staðreynd að ríkið batt með ákveðnum hætti enda á það félagslega húsnæðisuppbyggingarfyrirkomulag sem var. Það hefur því miður bitnað á þeim sem eru viðkvæmast settir í samfélaginu.
Ég vil spyrja hv. þingmann hvort hann sé ekki sammála mér um að þar þyrftum að gefa hreinlega í, því að fjöldi fólks hefur hvorki efni á markaði leigusala né húsnæðissala yfir höfuð. (Forseti hringir.) Þetta er allt úr böndum og komið í algjörar ógöngur.