153. löggjafarþing — 16. fundur,  13. okt. 2022.

húsaleigulög.

272. mál
[12:52]
Horfa

Jakob Frímann Magnússon (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Kannski sem betur fer er það ekki svo að leiguverð hafi hækkað í réttu hlutfalli við hækkun söluverðs eða fasteignaverðs almennt. Það er samspilið á milli þessarar gríðarlegu ávöxtunarkröfu og kostnaðar við að byggja og svo fasteignagjaldanna sem er í einhverjum óstjórnanlegum spíral. Bara ef einhver maður kaupir dýrt hús einhvers staðar hækkar það hjá þér fasteignagjöldin ef þú býrð í sömu götu. Þetta er óheilbrigt samband. Leigumarkaðurinn og húsnæðismarkaðurinn er óheilbrigður og við ættum að reyna að sammælast um að koma honum í betra skikk.

Hv. þingmaður sagði í ræðu sinni að þessi skráningarskylda gæti leitt til svarts markaðar á húsnæðismarkaði og gert þar með leigjendum erfiðara fyrir. Heldur þingmaðurinn virkilega að það sé ekki svartur markaður á leigumarkaði á Íslandi? (ÓBK: Þetta mun efla hann.)