breytingar á aðalnámskrá í grunnskóla.
Forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ræða hans minnti mig á að ég var einu sinni, árið 2006, að vinna í Fjármálaeftirlitinu og tók þátt í eftirliti Financial Action Task Force um peningaþvætti á Íslandi, aðgerðum gegn íslensku peningaþvætti. Ég var svo í því að kynna aðgerðirnar og tók þátt í mati og viti menn, þá fékk ég að heyra að þetta væri nú ekki svona á Íslandi, þetta væri öðruvísi á Íslandi en úti í heimi. Þetta er nákvæmlega sama umræðan núna. Það sem vantar í dag er þetta: Það vantar stöðumat. Hraðlestrarmælingarnar eru ekki að skila neinum árangri. Þær valda kvíða og angist hjá börnum sem taka þátt í hraðlestrarmælingum, enda þarf að kenna fólki að ganga áður en það fer að hlaupa en ekki mæla hlaupin. Það er það sem verið að gera með hraðlestrarmælingum. Það er það sem við erum að leggja til að verði tekið út í b-liðnum.
Annað sem er líka er þessi blessaða hugsmíðahyggja sem byggist ekki á fremstu vísindum og greinum. Hún bara gerir það ekki. Hugsmíðahyggjan er góð með öðrum aðferðum þegar fólk er komið af stað. Börnin eiga ekki sjálf að finna út hvernig þau eiga að læra að lesa, það þarf að leiðbeina þeim um hvernig á að lesa, þau þurfa að brjóta lestrarkóðann. Hhljóðbókstafaaðferðin gengur út á það. Það er það sem er málið. Þetta heimatilbúna kukl sem er hérna í gangi, og ég hef sagt þetta áður í ræðu svo við höfum það alveg á hreinu, það að byggja þetta á hugsmíðahyggjunni, að kenna fólki grunnlestrarfærni, þarf að gera með alþjóðlega viðurkenndri aðferð. Svo einfalt er það. Staðreyndirnar tala sínu máli. Og af hverju fara þá ekki íslensk stjórnvöld bara út í heim og segja við OECD sem rekur PISA-kannanirnar að PISA-kannanirnar séu ekki nógu góðar fyrir Ísland? (Gripið fram í.) Þau hljóta að gera það, íslensk stjórnvöld hljóta bara að fara og leiðrétta það ef kannanir PISA og UNESCO og UNICEF er ekki nógu góðar fyrir Ísland. Þá hljóta íslensk stjórnvöld, þau eru með sendiráð í París, að geta sent sína menn til OECD og sagt: Heyrðu, þetta eru ekki nógu góðar kannanir fyrir Ísland. Þau eru bara ekkert að gera það. Það er mjög einfalt mál að gera það. Ég hef farið á svona fundi úti í París. Þetta er minnsta mál í heimi. Að koma svo hingað heim og segja: Nei, þetta er ekki nógu gott hér heima, það bara stenst ekki.