Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 17. fundur,  17. okt. 2022.

Frestun á skriflegum svörum.

[15:04]
Horfa

Forseti (Birgir Ármannsson):

Forseta hafa borist bréf frá umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skrifleg svör við fyrirspurnum á þskj. 169, um orkuskipti farartækja opinberra stofnana og fyrirtækja, frá Þorbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur, og á þskj. 203, um sorpbrennslu, frá Ágústi Bjarna Garðarssyni.

Einnig hefur borist bréf frá dómsmálaráðherra þar sem óskað er eftir fresti til þess að veita skriflegt svar við fyrirspurn á þskj. 184, um kostnað vegna rannsókna og haldlagningar vímuefna, frá Halldóru Mogensen.