153. löggjafarþing — 17. fundur,  17. okt. 2022.

fjármögnun málaflokks fatlaðra.

[15:06]
Horfa

Logi Einarsson (Sf):

Herra forseti. Í heimsóknum þingmanna til sveitarfélaga í síðustu kjördæmaviku var fulltrúum þeirra tíðrætt um óréttláta tekjuskiptingu milli ríkis og sveitarfélaga sem kæmi ekki síst niður á þjónustu við fatlað fólk. Eins og margoft hefur komið fram telja þau að það vanti 9–11 milljarða frá ríkinu inn í rekstrargrunninn. Þess vegna var mjög gleðilegt þegar hæstv. innviðaráðherra tilkynnti á fjármálaráðstefnu sveitarfélaga í síðustu viku um 5–6 milljarða innspýtingu í málaflokkinn. Það á að gerast með þeim hætti að hámarksútsvarsprósenta sveitarfélaga hækkar um 0,26 prósentustig en tekjuskattur sem ríkið innheimtir lækkar á móti sem því nemur, samkvæmt orðum ráðherra. Þetta kom að sumu leyti á óvart þar sem ekkert hefur verið um þetta rætt, hvorki í fjárlaganefnd eða efnahagsnefnd og þingmenn stjórnarflokkanna virtust koma af fjöllum.

Auðvitað trúir maður svona afgerandi yfirlýsingu frá ráðherra og þess vegna beini ég eftirfarandi spurningum til hæstv. forsætisráðherra:

Í fyrsta lagi: Hvenær var þetta samþykkt í ríkisstjórn? Í öðru lagi: Af hverju birtust þessar fyrirætlanir ekki strax við framlagningu fjárlaga fyrr í haust þar sem þessi vandi hefur blasað við í svo langan tíma? Í þriðja lagi: Þar sem ljóst er að útfærsla sem innviðaráðherra tilkynnti mun lækka tekjur ríkissjóðs umtalsvert, sér hæstv. forsætisráðherra fyrir sér nýja tekjustofna sem munu bæta þetta upp? Á að skila ríkissjóði með meiri halla en áður var gert ráð fyrir eða verða útgjöld skorin niður og hver þá?