fjármögnun málaflokks fatlaðra.
Herra forseti. Þetta hefur sem sagt ekki verið ákveðið. Þá held ég að það væri ekki úr vegi að beina því til hæstv. ráðherra að tala aðeins skýrar vegna þess að ég hef ekki hitt eina manneskju sem kom út af fjármálaráðstefnunni sem áttaði sig á því að þetta væri svona einhver hugmynd sem hefði dottið ofan í kollinn á hæstv. ráðherra.
En ég spyr þá í framhaldi af því: Er ekki bara kominn tími til að þeim linni, þessum látlausu yfirlýsingum frá ráðherrum Framsóknarflokksins sem eru greinilega ekki hugsaðar til neins annars en að setja væntingar fólks í hæstu hæðir? Svo eru þeir reknir til baka með þetta í hvert skipti sem við mætum hér í óundirbúnar fyrirspurnir.