153. löggjafarþing — 17. fundur,  17. okt. 2022.

málefni fátækra.

[15:12]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Í dag, 17. október, er alþjóðadagur helgaður útrýmingu fátæktar. Skyldi ríkisstjórnin vita af því eða er henni kannski alveg sama? Með deginum gefst tækifæri til að viðurkenna fátækt, jafnvel sárafátækt. Tíundi hver öryrki á Íslandi ver meira en 75% af ráðstöfunartekjum sínum í rekstur húsnæðis samkvæmt fyrstu niðurstöðum könnunar sem Félagsvísindastofnun vinnur nú fyrir Öryrkjabandalag Íslands. Í flestum tilfellum er um leigu að ræða en greiðslubyrði fatlaðs fólks vegna leigukostnaður er vel yfir meðaltali í landinu. Samkvæmt könnun sem Húsnæðis- og mannvirkjastofnun lét gera á síðasta ári kemur fram að tæplega þriðjungur öryrkja greiðir meira en 50% af ráðstöfunartekjum sínum í leigu. Allt hækkar, matur, lyf, heilbrigðisþjónusta, húsnæði, en framfærsla fátæks fólks batnar ekki í takt við hækkanir á nauðsynjum. Allt of stór hópur fólks er á framfærslu sem er langt undir lágmarksframfærslu og dugar ekki til mannsæmandi lífs.

Á hverjum bitnar þetta verst? Jú, þar standa langverst einstæðir fatlaðir foreldrar og börnin þeirra. Um 50% þeirra sem leita til umboðsmanns skuldara eru fatlað fólk og hefur sú tala hækkað um 5% bara á síðustu tveimur mánuðum. Vandi fátæktar, hvað þá sárafátæktar, á Íslandi er aðgerðaleysi stjórnvalda í málefnum fátæks fólks. Frítekjumörk hækka ekki, 300.000 kr. í tekjur og 75% af því í leigu eru 225.000 kr. og 75.000 kr. í allt annað. Eigum við að sætta okkur við það? Er eðlilegt að 200 einstaklingar séu vistaðir á hjúkrunarheimilum, lokaðir þar í herbergi — bara í geymslu, eins og einhver sagði.

Ég spyr hæstv. forsætisráðherra. Hún sagði að öryrkjar og fatlað fólk gæti ekki beðið lengur eftir réttlætinu. Ekkert hefur skeð. Hvað ætlar hæstv. forsætisráðherra að gera í því?