153. löggjafarþing — 17. fundur,  17. okt. 2022.

ályktun Evrópuráðsþingsins vegna Rússlands.

[15:21]
Horfa

utanríkisráðherra (Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir) (S):

Herra forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrirspurnina og fagna hverju tækifæri hér sem við fáum til að ræða þessi alvarlegu mál. Ég fylgdist með vinnu Evrópuþingsins og það er auðvitað stórfrétt að þetta er fyrsta alþjóðlega samkoman sem ályktar með þessum hætti. Vissulega hafa leiðtogar leyft sér að tala á þennan hátt, þ.e. að segja upphátt að Rússlandsstjórn stundi hryðjuverk og sé hryðjuverkastjórn, en það er stórt skref af Evrópuþinginu að álykta eins og það gerði. Ég hef gert mitt allra besta til að tala eins skýrt og mögulegt er fyrir hönd íslenskra stjórnvalda og almennings á Íslandi sem ég finn ekki fyrir öðru en að sé sammála okkur, á svona sögulegum stundum þar sem ekki liggur fyrir hversu hræðilegt ástandið muni verða áður en það batnar, að fullvalda og sjálfstætt ríki noti rödd sína til að tala hátt og skýrt.

Ég vona að það verði af leiðtogafundinum hérlendis, sem væri þá sá stærsti sinnar tegundar sem haldinn hefur verið á Íslandi. Við munum nota okkar formennsku, sem við tökum auðvitað við á mjög sögulegum tímum, eins vel og við getum og munum tala skýrt og leggja skýra áherslu á það sem hv. þingmaður nefndi. Það er áhugavert að kannski í marga áratugi hefur ekki verið jafn augljóst og nú hvað er þess virði að berjast fyrir. Þau gildi sem íslenskt samfélag er sammála um að séu þess virði að berjast fyrir höfum við kannski tekið sem gefnum hlut, en nú liggur fyrir að það er vegið að þessum gildum. Reynt er að breyta heimsmyndinni og hvernig við tökum ákvarðanir, hvort alþjóðakerfið er leiðin til þess að taka erfiðar ákvarðanir eða ekki þegar upp koma krísur eða stríð. Ég heiti því að nýta þessa sex mánuði eins vel og við mögulega getum.