ályktun Evrópuráðsþingsins vegna Rússlands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það má vera aðeins nákvæmari varðandi það sem Úkraínuforseti, úkraínska ríkisstjórnin og meira að segja úkraínska landsdeildin í Evrópuráðsþinginu hefur verið að kalla eftir þegar kemur að því að draga Rússland og rússneska aðila til ábyrgðar. Meðal annars hefur verið nefnt að þjóðir taki sig saman og stofni sérstakan dómstól sem hefur það hlutverk að rétta einungis yfir glæpum gegn friði eins og að skipuleggja og hrinda af stað þessu árásarstríði. Þetta er talinn líklegasti möguleikinn á því að handsama Pútín Rússlandsforseta á einhvern hátt. Á hinn bóginn hefur verið kallað eftir því að setja á fót sérstakan dómstól sem getur í raun réttað um skaðabætur fyrir það gríðarlega tjón sem hefur orðið vegna stríðsins. Þetta hafa verið tvö megináhersluatriði úkraínskra leiðtoga í sínu alþjóðastarfi og ég velti því fyrir mér hvort hæstv. ráðherra styðji þessar hugmyndir og muni beita sér fyrir því að þær verði að veruleika í sinni formennskutíð í ráðherraráðinu.