ályktun Evrópuráðsþingsins vegna Rússlands.
Herra forseti. Já, við munum gera það. Í fyrsta lagi finnst mér mjög mikilvægt að við beitum í raun öllum tiltækum ráðum til að draga Rússland til ábyrgðar. Við höfum ákveðið kerfi núna sem er mikilvægt að nota, en ef atriði eru til staðar þar sem ekkert kerfi getur dregið fólk til ábyrgðar þá þarf einfaldlega að búa það til. Það þarf að hafa hraðar hendur svo það taki ekki marga áratugi því að það er ekki nóg að draga þá til ábyrgðar sem framkvæma stríðsglæpi í Úkraínu heldur líka þá sem fyrirskipa glæpina. Verið er að glíma við þessi mismunandi kerfi, við þurfum að styðja vel við þau kerfi sem þegar eru til og styðja síðan og aðstoða við að búa til það sem þarf í tilviki rússneskra stjórnvalda sem fremja stríðsglæpi og brjóta alþjóðalög í Úkraínu.