153. löggjafarþing — 17. fundur,  17. okt. 2022.

kjötframleiðsla á Íslandi.

[15:28]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnina. Fyrirkomulagið er þannig að það er okkar viðfangsefni að skapa umgjörð sem lætur landbúnað blómstra, og þá þann landbúnað sem stuðlar að því að tryggja fæðuöryggi í landinu og sinnir markmiðum samfélagsins um sjálfbærni og loftslagsmarkmið. En nú er það svo að ríkið framleiðir ekki kjöt. Bændur ákveða framleiðslumagn en landbúnaðurinn hefur sannarlega mjög mikil sóknarfæri og það er hlutverk og verkefni okkar, og þá er ég að tala um okkur sem förum með samningsumboðið fyrir hönd ríkisins í samtölum við bændur við gerð búvörusamninga og nú endurskoðun samningsins á næsta ári, að tryggja að fjármagn hins opinbera sem rennur til búvörusamninga nýtist sem best í þágu þessara markmiða. Það gildir um þau sóknarfæri sem við eigum og eru kannski þau sterkustu, þau eru í kornrækt og grænmetisframleiðslu en líka í þeim þáttum framleiðslunnar sem lúta að mjólkur- og kjötframleiðslu. Svo mun verða enn um sinn og ég árétta að það er okkar hlutverk og verkefni að skapa skilyrði fyrir blómlegan landbúnað.