153. löggjafarþing — 17. fundur,  17. okt. 2022.

kjötframleiðsla á Íslandi.

[15:31]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegur forseti. Ég þakka nú fyrir líkinguna varðandi heita grautinn, en það er þannig að íslenskur landbúnaður hefur í raun og veru uppfyllt þær þarfir sem íslenskur markaður hefur fyrir kjöt og mjólk. Íslendingum mun fjölga og neyslan aukast en stóru sóknarfærin eru í korni og útiræktuðu grænmeti. Þar getum við auðvitað líka velt fyrir okkur neytendum framtíðar og við sjáum að krafan sem ungir neytendur gera í ríkari mæli varðar upplýsingar um kolefnisspor, upprunamerkingar og ábyrga og sjálfbæra matvælaframleiðslu. Því verðum við að vera í takti við neytendur framtíðar í þeim áherslum sem við leggjum. En íslenskur landbúnaður nær sem sé að mestu leyti að uppfylla innlendar þarfir fyrir kjöt og mjólk.