hert innflytjendastefna.
Virðulegi forseti. Umræðan um hælisleitendur hefur verið hættuleg og skaðleg að undanförnu. Til að mynda voru tvö aðskilin mál á landamærunum sem greint var frá í Morgunblaðinu á dögunum, annars vegar álag vegna hælisleitenda og hins vegar fíkniefnamál, orðin að, með leyfi forseta, „fjölda burðardýra í hópi hælisleitenda sem teknir eru með lyf innvortis“. Þessi tilvitnun er ekki fengin frá einhverjum nafnleysingjanum í athugasemdakerfum heldur eru þetta orð sem féllu hér í ræðustóli Alþingis í síðustu viku frá hv. þm. Ásmundi Friðrikssyni. Tvö aðskilin mál samkvæmt frétt Mogga, hælisleitendur og fíkniefnaburðardýr verða að einum og sama hópnum, sem er auðvitað alveg afleitt.
Hæstv. dómsmálaráðherra hefur síðan talað um stjórnleysi í málaflokknum en reyndar verið skotinn niður með það af hæstv. forsætisráðherra. Í þessu andrúmslofti verða til hráefni í hættulegan kokteil ef við gætum okkar ekki. Álagið er vissulega mikið tímabundið vegna flóttafólks frá Úkraínu og til að bregðast við þessu tímabundna álagi er boðuð mun harðari stefna sem mun ekki hafa áhrif á fólk sem kemur frá Úkraínu eða Venesúela heldur aðra hópa í viðkvæmri stöðu sem hingað leita.
Svo maður reyni nú aðeins að setja sig inn í þennan þankagang dómsmálaráðherrans og yfirfæra hann inn á málefnasvið hæstv. innviðaráðherra þá er þetta ámóta gáfulegt og að ætla sér að leysa umferðaröngþveiti við Ölfusárbrú með því að loka hjólastíg í Heiðmörkinni.
Hæstv. dómsmálaráðherra hefur talað um lokaðar búðir að danskri fyrirmynd fyrir þá sem synjað hefur verið um hæli, en í Danmörku er staðan ofureinfaldlega sú að börn og fullorðnir hafa þurft að hírast árum saman í slíkum búðum, sem eru reyndar ekki lokuð úrræði eins og hæstv. dómsmálaráðherra hefur talað fyrir. Ég vil því spyrja hæstv. innviðaráðherra og formann Framsóknarflokksins hvort honum hugnist hugmyndir um harðari innflytjendastefnu að danskri fyrirmynd og hvort það komi til greina að halda fólki í lokuðum úrræðum á meðan það bíður brottvísunar. Á annað hundrað einstaklingar, fjöldi barna þar á meðal, falla í þennan hóp hér á Íslandi þar sem móttökuríkið vill ekki taka við fólkinu, svo dæmi sé tekið. Kemur þetta virkilega til greina?