153. löggjafarþing — 17. fundur,  17. okt. 2022.

hert innflytjendastefna.

[15:37]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það er gott að heyra það að við þurfum að gera allt sem við getum gert, þó svo að það sé svo sannarlega rétt að við leysum ekki vandann allan. En spurningar mínar lutu svolítið að þeirri hugmyndafræði sem birst hefur við ríkisstjórnarborðið og kemur frá hæstv. dómsmálaráðherra. Ég er svona að reyna að fá það fram hvort Framsóknarflokkurinn ætlar að fara með Sjálfstæðisflokknum í þessa vegferð; lokuð úrræði fyrir fólk sem þarf mögulega að bíða árum saman eftir því að vera vísað úr landi vegna þess að móttökuríkið getur ekki tekið á móti því eða vill ekki taka á móti því og það eru ekki til neinir samningar þar um. Þetta er staðan í Danmörku þó að úrræðin þar séu ekki lokuð. Síðan er það auðvitað þannig að það eru alltaf fleiri og fleiri ríki sem líta öðruvísi á fólk frá Venesúela og er þar m.a. vísað til alþjóðlegra stofnana. Þannig að ég ætla að endurtaka spurningu mína: Kemur til greina að fara þessa leið, að tala um harðari stefnu? Og þegar talað er um „að norrænni fyrirmynd“, við hvaða Norðurlönd eigum við þá að miða? Vegna þess að Norðmenn gera þetta allt, allt öðruvísi en Danir, sem gera þetta síðan allt, allt öðruvísi en Svíar o.s.frv. Kemur til greina að fara þá leið sem ég lýsti hér í spurningunni?