153. löggjafarþing — 17. fundur,  17. okt. 2022.

Staðan á landamærunum með tilliti til aukins fjölda hælisleitenda og afleidd áhrif .

[16:01]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Mjög mikilvægt er að við Íslendingar höfum sátt um það hvernig við ætlum sem samfélag að standa að móttöku flóttamanna og standa um leið við alþjóðaskuldbindingar okkar þegar kemur að móttöku flóttamanna. Ísland er aðili að alþjóðasamningi Sameinuðu þjóðanna um stöðu flóttamanna frá 28. júlí 1951, sem kallaður er flóttamannasamningurinn. Við eigum einnig aðild að Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna. Við eigum að standa við skuldbindingar okkar samkvæmt flóttamannasamningnum.

Við í Flokki fólksins teljum að vel sé hægt að ná breiðu samkomulagi á Alþingi um hvernig við Íslendingar stöndum við alþjóðlegar skuldbindingar þegar kemur að móttöku flóttamanna. Hvernig förum við að því? Jú, við eigum að leita til nágranna okkar, Noregs og Danmerkur, leita fyrirmynda hjá þeim. Breið sátt er í Noregi um framkvæmd þessara mála og málsmeðferðina þegar kemur að afgreiðslu á umsókna flóttamanna um alþjóðlega vernd. Í Danmörku er einnig sátt á milli stóru flokkanna, Venstre og Sósíaldemókrata. Þessar nágrannaþjóðir okkar leggja áherslu á að hver umsækjandi um alþjóðlega vernd fái réttláta málsmeðferð. Við þurfum að taka upp svipað kerfi og er í þessum ríkjum. Það þarf að nást breið sátt á Alþingi um það og ég tel að okkur þingmönnum beri skylda til þess. Noregur og Danmörk eru í Schengen eins og við og við eigum að geta haft sama kerfi og þau lönd. Afgreiðsla mála þarf að vera hröð á fyrstu stigum. Við þurfum að standa við okkar alþjóðaskuldbindingar líkt og þessar þjóðir gera og tryggja að fólk sem sækir um vernd fái réttláta málsmeðferð og uppfylli alþjóðleg skilyrði um að fá verndina. Mikilvægt er að tekið sé vel á móti flóttafólki og að þeir sem sækja um alþjóðlega vernd fái afgreiðslu umsókna sinna með skjótum hætti. Það þjónar ekki hagsmunum neinna að afgreiðsla þessara mála sé ekki hröð og markviss.