Staðan á landamærunum með tilliti til aukins fjölda hælisleitenda og afleidd áhrif .
Frú forseti. Hæstv. ráðherra talar um misnotkun á kerfinu. Hv. þm. Bergþór Ólason endurómar þau orð og lætur að því liggja að hér sé rætt um umsækjendur um alþjóðlega vernd, hælisleitendur, sem misnoti kerfið. Misnotkun á hæliskerfinu, sem lögreglan hefur sannarlega lýst yfir að hún hafi áhyggjur af, snýst um það að glæpahópar notfæra sér það kerfi sem við höfum byggt upp og gerir fólk á flótta berskjaldað fyrir misnotkun. Glæpamenn eru að notfæra sér flóttafólk, flóttafólk er ekki að notfæra sér kerfið. Þetta er það sem lögreglan á við. Þetta er misnotkunartæki sem við bjuggum til með því að gera það beinlínis ólöglegt að koma til Evrópu og óska eftir vernd.
Hæstv. ráðherra er stóryrtur um mikilvægi flóttamannasamningsins og það að standa vörð um það kerfi sem ætlað er að hjálpa fólki í raunverulegri neyð. Til þess leggur hann til að fólki sem veitt hefur verið vernd, t.d. í Grikklandi og Ungverjalandi, verði snúið við á þröskuldinum án nokkurra spurninga, án tillits til þess hvort það hafi tengsl við landið eða hvort aðrar sérstakar ástæður séu til að senda fólk ekki í þær hryllilegu aðstæður sem flóttafólk býr við í þessum ríkjum.
Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra: Hvert nákvæmlega er vandamálið sem ráðherra telur sig vera að leysa með þessum tillögum? Hvaða fólk er það sem er að svindla svona mikið á kerfinu og snúa þarf við á þröskuldinum? Eru það börnin af brotajárnshaugunum í Grikklandi sem fá eina máltíð í kirkjunni á dag og sjá ekki fram á að geta nokkurn tíma gengið í skóla? Eru þau að misnota kerfið hér og flóttamannasamninginn og taka pláss frá þeim sem eru í raunverulegri neyð? Er það fatlað flóttafólk sem fær ekki grunnþjónustu í Grikklandi og jafnvel ekki þau hjálpartæki sem það þarf til að lifa af í daglegu lífi eða flóttafólk með áfallastreituröskun sem hefur ekki skjól yfir höfuðið sem verndar það gegn ofbeldi og frekari áföllum? Því að það er þetta fólk sem tillögur Sjálfstæðisflokksins beinast gegn.
Þegar frumvarpið kom fyrst fram töldu einstaklingar í þessari stöðu um fjórðung umsækjanda hér á landi (Forseti hringir.) en í dag einungis 3%. Það gerir tillögurnar ekki minna (Forseti hringir.) mannfjandsamlegrar. Eitt barn sent héðan á ruslahaug í Grikklandi er einu barni of mikið.