Staðan á landamærunum með tilliti til aukins fjölda hælisleitenda og afleidd áhrif .
Virðulegi forseti. Það eru allir sammála um að það þarf að ræða þessi mál af einhverri yfirvegun en það skortir auðvitað talsvert mikið á að það sé gert, einfaldlega vegna þess að staðreynd málsins er sú — ekki ætla ég að henda einhverjum nöfnum hér upp — að það er bara of algengt þarna úti að verið sé að etja saman hópum. Við erum pínulítið að því núna þegar við tölum um gagngerar breytingar á kerfinu okkar vegna þess sem er tímabundið, þ.e. vegna flóttafólks frá Úkraínu og vegna flóttafólks frá Venesúela, en alþjóðastofnanir eru að komast að þeirri niðurstöðu að það fólk sé í þannig stöðu að ekki sé heppilegt að það sé sent til baka.
Þær breytingar sem verið er að leggja til hér á löggjöfinni og hafa verið boðaðar tengjast þessu fólki ekki með beinum hætti. Ég vara mjög eindregið við þessu og ég vara líka mjög eindregið við því að menn dragi svona rosalegar ályktanir af tölfræði sem segir bara hálfa söguna og er oft bara hálfsannleikur, sem því miður gerðist hjá hv. málshefjanda áðan. Ef við ætlum að brjóta þessa tölfræði niður og fara alla leið í þá leikfimi getum við komist að þeirri niðurstöðu að ef við ætlum að fara dönsku leiðina þá þurfum við að vera með verri þjónustu við fólk. Við þurfum að vera með harðari stjórnmálamenn sem tala um að hingað eigi helst ekki að koma fólk. Við eigum að tala um hryðjuverkamenn og við eigum að tala um eiturlyfjasmyglara. Þá fækkar hælisleitendum vissulega. Það er mjög skilvirk leið til þess að gera það.
Ef við ætlum að fara í tölfræðina getum við líka sagt: Pólverjar eru náttúrlega að standa sig alveg frábærlega vel. Þeir taka hlutfallslega á móti miklu fleirum en nokkur önnur þjóð í Evrópu. Það er tímabundið út af stríðinu í Úkraínu. Það segir okkur ekkert um kerfið hér og það segir okkur ekkert um kerfið í Póllandi.
Við verðum að hugsa þessi mál upp á nýtt. Þegar við tölum um þær breytingar sem verið er að boða í útlendingalöggjöfinni verðum við að hafa kjark til að líta til þess að fólkið frá Úkraínu er ekki þar undir, fólkið frá Venesúela er ekki þar undir. Þetta snýr að öðrum hópum. Við eigum ekki að nota tækifærið (Forseti hringir.) á meðan það er neyð og stríð í Evrópu til að herða að öðru fólki sem hingað vill koma til þess eins að fá frið og fá að vinna og fá að setja börnin sín í skóla, (Forseti hringir.) sem er nákvæmlega það sama og við öll myndum þrá ef við byggjum við sambærilegar aðstæður.