Staðan á landamærunum með tilliti til aukins fjölda hælisleitenda og afleidd áhrif .
Frú forseti. Ég þakka þessa umræðu og frummælanda hennar, hv. þm. Bergþóri Ólasyni. Þetta er mjög mikilvæg umræða og þörf eins og við þekkjum. Hv. þingmaður spurði í upphafi umræðunnar hvaða skýringar ráðherra teldi vera á því að hingað sækja hlutfallslega margfalt fleiri um vernd en á Norðurlöndum. Þar höfum við t.d. einstaklinga frá Venesúela. Í ferð allsherjar- og menntamálanefndar til Noregs og Danmerkur nýverið spurði ég sérstaklega að því í Noregi hve margir væru búnir að sækja um hæli frá Venesúela. Það voru 70. Hér á Íslandi er þessi tala að verða 700. Maður spyr sig hvers vegna. Ég held að ég hafi fundið svarið. Það er úrskurður sem kærunefnd útlendingamála gaf frá sér á þessu ári þar sem nefndin segir í raun að allir þeir sem koma frá Venesúela séu hingað velkomnir og fái hér viðbótarvernd svokallaða.
Ég hvet þingmenn til að lesa þennan úrskurð vegna þess að hann er mjög athyglisverður. Þar er vísað til þess að það séu margvíslegar aðgerðir í landinu, það sé erfitt efnahagsástand, skortur sé á hreinu drykkjarvatni og því að uppfylla grunnþarfir almennings o.s.frv. Þar er náttúrlega bara verið að lýsa landi sem er undir stjórn sósíalista. Jafnframt er talað um að glæpatíðnin sé há og algjört hrun réttarkerfisins. Leggist þetta saman séu aðstæður með þeim hætti að rétt sé að veita þeim viðbótarvernd hér á Íslandi. Þessi úrskurður, sem er stjórnvaldsúrskurður, er bara grænt ljós fyrir alla sem koma frá Venesúela til að koma til Íslands. Það búa 28 milljónir manns í Venesúela. Það er alveg ljóst að þessi úrskurður er algerlega á skjön við það sem er t.d. lagt upp með á Norðurlöndum. (Forseti hringir.) Þetta eru þessar svokölluðu séríslensku aðstæður sem við þurfum að taka á. Það er ekki einfalt vegna þess að þetta er stjórnsýsluákvörðun en það er svo sannarlega nauðsynlegt vegna þess að ef heldur fram sem horfir þá streymir fólk þúsundum saman frá Venesúela og við komum ekki til með (Forseti hringir.) að ráða neitt við ástandið.