Staðan á landamærunum með tilliti til aukins fjölda hælisleitenda og afleidd áhrif .
Frú forseti. Ég veit nú eiginlega ekki hvort maður á að hlæja eða gráta þegar flokkur sem kennir sig við frelsi einstaklingsins vill fara að hneppa fólk með einhverjum hætti í varðhald sem hefur ekkert annað gert en að leita sér að betra lífi. Slík stefna hefur einskorðast við stöku þingmann Sjálfstæðisflokksins en framganga dómsmálaráðherra um þessar mundir er a.m.k. vísbending um að Sjálfstæðisflokkurinn vilji gera þessi viðhorf að opinberri stefnu sinni. Og hvað með stefnu ríkisstjórnar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Vinstri grænna? Dómsmálaráðherra lætur stundum í það skína að hér sé fólk í stórum stíl að misnota kerfið, en svo er ekki og Rauði krossinn hefur leiðrétt ýmsar rangfærslur hans í því samhengi. Slíkur málflutningur þar sem spilað er á ótta frekar en upplýsingu, fordóma frekar en rökhugsun er hins vegar dapurleg vísbending um að íslensk pólitík gæti verið að færast á svipaðar slóðir og við sjáum allt of víða í kringum okkur. Nú síðast sjáum við nýja stjórn hófsamra hægri manna í Svíþjóð reiða sig á Svíþjóðardemókratana, hægri öfgaflokk sem fékk mikið fylgi í síðustu kosningum vegna hræðsluáróðurs. Þetta er sorglegt dæmi um tiltölulega hófsama flokka sem fórna stórum grunngildum til að ná völdum. Í þessu ljósi hlýtur að vera fróðlegt að sjá hvernig Vinstri græn munu bregðast við á næstu dögum. Eitt er víst að þau geta ekki firrt sig ábyrgð og borið því við að málið sé þeim óviðkomandi af því að það sé á forræði ráðherra annars flokks.
Frú forseti. Með öðrum orðum hafa samstarfsflokkar Sjálfstæðisflokksins, Vinstri græn og Framsókn, algerlega í höndum sér hvort upp er að renna nýtt tímabil í íslenskum stjórnmálum með harðari og ómannúðlegri pólitík í þessum málum.