153. löggjafarþing — 17. fundur,  17. okt. 2022.

Staðan á landamærunum með tilliti til aukins fjölda hælisleitenda og afleidd áhrif .

[16:21]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Ísland getur ekki haft rýmri reglur en kveðið er á um í alþjóðlegum skuldbindingum okkar. Það hleypir hættunni heim af augljósum ástæðum og Ísland tekur á móti hlutfallslega fleiri umsóknum og fólki sem hingað leitar til að sækja um alþjóðlega vernd. Þess vegna er mjög mikilvægt að Ísland sé ekki með sérreglur sem eru frávik frá þeim framkvæmdum sem eru í nágrannalöndum okkar. Mikilvægt er að móttaka á mögulegum flóttamönnum eða umsækjendum um alþjóðlega vernd sé samræmd og mikilvægt að ástandið verði ekki slíkt að sveitarfélög í landinu ráði ekki við að taka á móti fólkinu líkt og dæmi eru um, t.d. í Hafnarfirði. Það þjónar ekki hagsmunum neinna.

Einnig er mikilvægt að skólakerfið ráði við að taka á móti þeim börnum sem hingað koma og skólarnir nái að veita börnum þá þjónustu sem þau þurfa. Það verður einungis gert með samræmdri móttöku og stjórn í málaflokknum þannig að dreifing flóttamanna til sveitarfélaga sem taka á móti flóttamönnum sé með þeim hætti að sveitarfélög og skólarnir ráði við málaflokkinn. Það er verkefni okkar þingmanna að tryggja að lagaramminn sé með þeim hætti að ofangreind markmið náist og við eigum að stefna að því að ná breiðari sátt um markmiðin, lagarammann, og þá réttlátu meðferð sem okkur ber að veita hælisleitendum og umsækjendum um alþjóðlega vernd. Það gerum við með því að sameinast um að standa við alþjóðaskuldbindingar okkar í málaflokknum, tryggja að allir hælisleitendur fái réttláta málsmeðferð við afgreiðslu umsókna og að hún verði tafarlaust sem hröðust. Það gengur ekki að við séum með sérreglur, rýmri reglur en aðrar þjóðir. Það leiðir okkur einungis í þær ógöngur sem við virðumst vera komin í í þessum málaflokki.

Ég skora á aðra flokka hér á þingi að taka höndum saman og leggja sitt af mörkum til að koma á breiðri sátt um málaflokkinn sem er okkur öllum til sóma.