Staðan á landamærunum með tilliti til aukins fjölda hælisleitenda og afleidd áhrif .
Virðulegur forseti. Ég ætla að halda áfram þar sem frá var horfið áðan. Samræmd móttaka flóttamanna var að mínu mati skref í rétta átt þar sem allir sem hingað koma, hvort sem þeir koma í gegnum kvótakerfið eða sem umsækjendur um alþjóðlega vernd, fara í gegnum sama ferlið þar sem Fjölmenningarsetur, Rauði krossinn og fleiri hagaðilar koma að því að aðlaga einstaklingana að íslensku samfélagi og finna húsnæði og sveitarfélög til að aðstoða við verkefnið. Vandamálið við þetta kerfi er að ekki hefur náðst að fjölga þeim sveitarfélögum sem koma að þessu verkefni svo of fá sveitarfélög hafa borið byrðarnar. Því verður að breyta, virðulegur forseti, ef þetta kerfi á að geta gengið til lengdar.
Húsnæðismál eru einn af stærstu flöskuhálsum kerfisins og það er nauðsynlegt að fá fleiri sveitarfélög að borðinu til að dreifa álaginu sem og að bjóða upp á fleiri úrræði. Ísland hefur sögulega staðið vel að móttöku flóttamanna og við viljum að svo sé áfram. Rík þjóð eins og Ísland sem skorar hátt eða hæst á öllum mælikvörðum þarf að leggja sitt af mörkum þegar kemur að þessum viðkvæma málaflokki. Við eigum að hafa umgjörðina um málaflokkinn með þeim hætti að við getum tekið vel á móti því fólki sem hingað kemur, bæði er varðar húsnæði og þjónustuna sem ríki og sveitarfélög veita flóttafólki. Því blasir við að við getum ekki tekið á móti öllum. Að mínu mati er það verkefni einfaldlega ekki gerlegt. Það er mikilvægt að fólkið sem hingað leitar upplifi sig öruggt og fái strax þjónustu, húsnæði og aðra þjónustu líkt og skólaþjónustu fyrir börn.
Virðulegur forseti. Kerfið verður að vera með því sniði að við getum veitt þeim einstaklingum sem hingað koma góða þjónustu. Það er hins vegar mikilvægt að muna að þær aðstæður sem uppi eru núna, stríð í Evrópu, eru óvenjulegar og mun vonandi ljúka fljótlega þótt erfitt sé að segja til um það. Gerum vel við þá sem hingað koma og sníðum kerfið okkar að því sem við getum gert og treystum okkur til að gera.