153. löggjafarþing — 17. fundur,  17. okt. 2022.

Staðan á landamærunum með tilliti til aukins fjölda hælisleitenda og afleidd áhrif .

[16:28]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Frú forseti. Stefna okkar í Vinstri grænum, þegar kemur að flóttamannamálum og málum sem snúa að þeim sem hingað koma í leit að alþjóðlegri vernd og eru að flýja hræðilegar aðstæður í sínum heimalöndum, er að taka eigi á þeirra málum með mannúð og sanngjarnri málsmeðferð. Mér finnst að þegar hv. þm. Bergþór Ólason fer að bera saman tölur frá Þýskalandi frá því á árunum 2015–2016 við einhverjar tölur á Íslandi núna árið 2022 þá skauti hann algjörlega yfir það að síðan þá hefur brotist út stríð í Evrópu, eða það braust ekkert út, það var ráðist inn í Úkraínu. Það eru 7 milljónir manns á flótta. Það skiptir máli inn í þessa umræðu sem við eigum hérna í dag, það er fólk sem er að bætast við þær milljónir sem voru áður á flótta.

En mig langar líka aðeins að tala um það sem gengur vel og við erum að gera vel því að það skiptir máli að við tökum vel á móti fólkinu sem hingað kemur. Síðast í hádegisfréttunum var forstjóri Vinnumálastofnunar að segja að það gengi bærilega að koma fólki í húsnæði. Það er vegna þess að það er verið að leggja gríðarlega mikla vinnu í það atriði. Það er verið að aðstoða fólk við að fá húsnæði og komast í vinnu og það er það sem við sem samfélag eigum að halda áfram að gera. Við erum meðal ríkustu þjóða heims. Auðvitað þurfum við að takast á við alls konar mál hérna innan lands en við eigum að vera stolt þjóð meðal þjóða sem tekur vel á móti því fólki sem er að flýja hörmulegar aðstæður úti um allan heim og núna í augnablikinu sérstaklega frá Úkraínu.