þjónusta Útlendingastofnunar á landsbyggðinni.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka fyrir þessa fyrirspurn frá hv. þingmanni. Sýslumönnum ber, samkvæmt 7. gr. laga nr. 50/2014, um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði, að hafa forgöngu og reglulegt samráð við sveitarfélög og önnur stjórnvöld ríkisins um fyrirkomulag og samræmingu opinberrar þjónustu í umdæmum landsins. Á grundvelli þess og með þarfir íbúa héraðanna í huga hefur myndast sú hefð hjá embættum á landsbyggðinni að aðstoða íbúa með samskipti við stjórnvöld utan svæðisins. Víðs vegar um land eru sýslumenn eina staðbundna stjórnvaldið á svæðinu og því hefur sú framkvæmd myndast að aðstoða almenning þótt málefnið falli utan starfssviðs sýslumanns, þó þannig að gætt sé að því að stíga ekki inn á valdsvið hlutaðeigandi stjórnvalds. Aðstoðin felst fyrst og fremst í því að leiðbeina þeim einstaklingum sem til sýslumanns leita um þjónustu annarra ríkisstofnana, koma á samtali við starfsfólk hlutaðeigandi stjórnvalda og sjá um afhendingu eyðublaða og framsetningu þeirra ásamt öðrum gögnum í samræmi við 2. mgr. 7. gr. stjórnsýslulaga.
Auk framangreindrar aðstoðar sýslumannsembættanna á landsbyggðinni geta sýslumenn með samþykki ráðherra annast framkvæmd verkefna fyrir aðrar ríkisstofnanir eða stjórnvöld með sérstökum samningi enda standi ákvæði laga því ekki í vegi, samanber 2. mgr. 4. gr. laga um framkvæmdarvald og stjórnsýslu ríkisins í héraði. Útlendingastofnun hefur gert samning við sýslumannsembættin um að veita umsóknargögnum viðtöku, taka á móti greiðslu afgreiðslugjalds, annast myndatöku, töku fingrafara og afhendingu dvalarleyfiskorta eftir því sem þörf er á. Hlutverk sýslumanns, samkvæmt samningnum, einskorðast við þessi verkefni. Eins og fyrr greinir felst stuðningur sýslumanns við Útlendingastofnun í öðru en því einu eða eftir því sem þarfir umsækjenda eru hverju sinni. Embættin annast hins vegar enga skráningu eða mat á umsóknum og þeim gögnum sem skilað er heldur senda þau upplýsingar og gögn beint til Útlendingastofnunar til vinnslu. Það sama gildir um myndatöku, töku fingrafara og afhendingu korta — sýslumaður sinnir því fyrir Útlendingastofnun en veitir engar aðrar leiðbeiningar sem snúa að afgreiðslu umsókna. Þurfi íbúar landsbyggðarinnar að leita eftir frekari leiðbeiningum með aðstoð frá Útlendingastofnun er hægt að gera það í gegnum síma og tölvupóst og því ætti fólk ekki að þurfa að gera sér sérstaka ferð á höfuðborgarsvæðið til að sækja þessa þjónustu stofnunarinnar.
Nú heyri ég þær dæmisögur sem hv. þingmaður fer hér yfir sem segja kannski svolítið aðra sögu, draga upp aðra mynd og það er alvarlegt mál. Ég mun leita skýringa á því hvernig á þessu stendur. Það er í mínum huga gríðarlega mikilvægt að þessar stjórnsýslumiðstöðvar, eins og ég lít á sýslumannsembættin og sýslumannsskrifstofurnar út um land, séu í stakk búnar að sinna sínum erindum, sinna þeim erindum sem til þeirra berast og sinna þeirri vinnu sem þau þurfa að vinna. Það er alveg rétt að þróun í rafrænni þjónustu hefur verið mikil í starfsemi stofnunarinnar og er áætlað að 50% umsókna á þessu ári verði mögulega á rafrænu formi en allt að 100% í lok næsta árs. Það mun auðvitað gjörbreyta allri aðstöðu. Síðan er þetta kannski hluti af stærra máli sem ég hef boðað að komi hingað inn til þingsins fljótlega og það er þessi sameining sýslumannsembætta og efling þessara starfsstöðva út um land.
Án þess að ég viti ástæðuna fyrir því af hverju dæmin eru með þeim hætti sem hv. þingmaður fór hér yfir, og við þurfum að skoða sérstaklega, má vera að það geti verið skortur á starfsmönnum sem hafa þekkingu og reynslu yfir sumartímann, t.d. í sumarafleysingum, af því að það var vitnað til sumarsins. Það geta verið einhverjar slíkar skýringar. En við þurfum að styrkja þessar starfsstöðvar í framtíðinni. Það er grundvallaratriði og það er einmitt þess vegna sem við erum að huga að þessari sameiningu, til að geta á landsvísu styrkt starfsemi þessara skrifstofa og gert þær betur í stakk búnar til að sinna hlutverki sínu og í raun miklu víðtækara hlutverki; að þetta verði alvörustjórnsýslustöðvar í héraði. Það mun koma betur fram þegar þetta frumvarp um sýslumannsembættin og mikilvægi þeirra mun líta dagsins ljós.
Það er líka möguleiki í þeirri stafrænu þróun og þróun í rafrænum umsóknum, eins og hjá Útlendingastofnun, að hluti af þeirri starfsemi verði hreinlega staðsettur hjá sýslumannsembættum úti á landi. Við getum tekið dæmi um umsóknir um ríkisborgararétt eða einhver önnur afmörkuð verkefni sem eru á vettvangi stofnunarinnar í dag en geta með þeirri þróun sem hefur átt sér stað, stafrænni þróun og rafrænni þjónustu, verið staðsett hvar sem er á landsbyggðinni. Þetta á við um miklu fleiri verkefni og til þeirra erum við einmitt að líta í þeirri framtíðarsýn sem við sjáum við uppbyggingu þessara þjónustumiðstöðva, stjórnsýslustöðva, úti um allt land.