þjónusta Útlendingastofnunar á landsbyggðinni.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. dómsmálaráðherra svörin og hv. þingmanni athugasemd. Ég tek undir með ráðherra að sýslumenn geta tekið að sér aukið hlutverk. Það hlutverk sem þeir hafa haft í málaflokknum hefur verið allt of þröngt og í raun hafa þeir hvorki haft leiðbeiningarhlutverk né hlutverk við að skrá þau gögn sem þeir hafa þó tekið við. Það hefur, held ég, verið hluti af því sem hefur verið að skapa vanda. Það hefði strax munað miklu ef það verkefni hefði verið hjá sýslumönnunum að skrá gögnin sem tekið hefur verið við og hafa yfirlit yfir þau þótt þau væru svo send áfram til Útlendingastofnunar.
Ég ætla að koma með eitt dæmi í viðbót sem ég held að gæti bætt þjónustuna. Próf í íslensku fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt eru einungis auglýst í Reykjavík og á Akureyri, þau eru auglýst reglulega. Ég veit vel að það er mögulegt að fá þau lögð fyrir hjá símenntunarmiðstöðvum annars staðar en þær upplýsingar liggja t.d. ekkert á lausu. Við vitum líka að póstþjónustan mun ekki aukast aftur, bara vegna þess að það dregur sífellt úr póstsendingum þannig að það gengur ekki að íbúar landsbyggðarinnar geti einungis haft samskipti við þjónustustofnun ríkisins með pósti eða með því að finna fólk sem er tilbúið að hlaupa eða keyra með skjöl um höfuðborgarsvæðið. Þess vegna er þetta hlutverk sýslumannanna auðvitað mjög mikilvægt. Það er mikilvægt að umsækjendur geti sjálfir stjórnað upplýsingum sem fylgja umsóknum rafrænt, bætt við eða tekið út upplýsingar eftir því sem við á. Þess vegna er rafræna stjórnsýslan svo mikilvæg og Útlendingastofnun hefur ítrekað skilgreint rafræna stjórnsýslu sem eitt af sínum mikilvægustu umbótaverkefnum. Ég spyr því hvort það sé ekki rétt skilið, eins og hefur raunar komið fram áður í okkar samtölum, að hæstv. ráðherra fylgi þeirri vinnu eftir.