153. löggjafarþing — 18. fundur,  17. okt. 2022.

aðgerðir til að treysta innlenda matvælaframleiðslu.

258. mál
[17:07]
Horfa

matvælaráðherra (Svandís Svavarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrirspurnirnar. Í skýrslu spretthópsins, sem vísað er til, er að finna margar tillögur til að efla innlenda landbúnaðarframleiðslu, bæði til lengri og skemmri tíma. Eins og fram hefur komið hefur landbúnaðinum verið tryggður sérstakur stuðningur á grundvelli þeirra tillagna að fjárhæð tæplega 2,5 milljarðar kr. Verulegur hluti þess fjármagns hefur þegar verið greiddur til bænda og svo má geta þess að fyrr á árinu voru greiddar 700 milljónir til bænda vegna hækkunar á áburðarverði og heildarviðbótarframlög hafa því numið um 3,2 milljörðum kr. á þessu ári. Ég mun í svörum mínum nefna nokkur verkefni sem eru í gangi til viðbótar en tíminn leyfir ekki tæmandi yfirferð.

Við höfum samið við Landbúnaðarháskóla Íslands um að vinna drög að aðgerðaáætlun til að efla kornrækt. Mikilvægi innlendrar kornræktar hefur aukist verulega í takti við aukið vægi fæðuöryggis síðustu misseri. Við þurfum að gera betur á því sviði og ríkisstjórnin ætlar sér það eins og fram kemur í stjórnarsáttmála.

Í tillögum spretthópsins er einnig fjallað um að hlutast þurfi til um einhvers konar áhættudreifingar- eða tryggingakerfi gegn uppskerubresti og það þurfi að komast á fót. Í nýrri skýrslu starfshóps ráðuneytisins um tryggingamál bænda, sem kom út 4. október, eru lagðar fram ýmsar tillögur um úrbætur á því sviði auk yfirferðar á stöðunni í dag og fyrirkomulag sambærilegra verkefna í nokkrum þeirra. Ég hef farið fram á það við stjórn Bjargráðasjóðs að hún taki til skoðunar að sameina sjóðinn Náttúruhamfaratryggingu Íslands um leið og gerðar verða verulegar endurbætur á fyrirkomulagi tryggingaverndar sem bændur eiga kost á. Ég vænti niðurstöðu þeirrar vinnu snemma á næsta ári.

Eins og fram kemur á þingmálaskrá er áætlað að leggja fram frumvarp um breytingar á búvörulögum. Þar er fjallað um samkeppni í framleiðslu og sölu á búvöru og með því frumvarpi verða lagðar til breytingar á lögunum í því skyni að ýta undir samvinnu og hagræðingu í vinnslu og markaðssetningu búvara. Þetta er nú í undirbúningi í ráðuneytinu og byggir enn á tillögum spretthópsins og hv. þingmaður hefur líka átt við mig orðastað um þessi mál sérstaklega.

Í ráðuneytinu er jafnframt unnið að gerð vegvísis um bætta nýtingu lífræns hráefnis. Þar er einkum verið að hugsa til sjálfbærrar áburðarframleiðslu. Þessari vinnu á að ljúka fyrir árslok og unnið er að samstarfi við hagaðila á þessu sviði og vonast til að vegvísirinn verði leiðarljós til að gera betur og gera okkur um leið óháðari innfluttum tilbúnum áburði sem skiptir miklu máli upp á fæðuöryggi hér.

Skipulagsmál má einnig nefna. Þau þurfa að taka mið af vaxandi mikilvægi ræktaðs og ræktanlegs lands í þágu fæðuöryggis hér eins og annars staðar í heiminum. Matvælaframleiðsla þarf að hafa ákveðinn forgang þegar línur eru lagðar um landnýtingu og staðarval fyrir atvinnustarfsemi og leiðbeiningar um flokkun landbúnaðarlands með tilliti til ræktunarhæfni hafa verið gefnar út. Því miður hafa sveitarfélögin ekki treyst sér nægilega vel í þá vinnu. Við þurfum mögulega að horfa til þess hvernig þetta verður best gert, stuðla að því að þessi flokkun fari fram og á þessu snerti spretthópurinn sömuleiðis.

Í lok september kom út ítarleg skýrsla starfshóps forsætisráðherra um nauðsynlegar birgðir til að tryggja lífsafkomu þjóðar á hættutímum. Þar er m.a. fjallað sérstaklega um matvæli og nauðsynleg aðföng vegna matvælaframleiðslu. Tillögur liggja fyrir í ráðuneytinu um næstu skref hvað varðar málefni sem heyra undir þennan heildarmálaflokk og þessa heildarsýn á það hvaða birgðir eru nauðsynlegar til þess að við getum talist hafa tryggt þetta öryggi.

Fram undan eru margþætt fleiri verkefni sem tengjast því sem ég hef þegar nefnt. Ég get nefnt þingsályktunartillögu um landbúnaðarstefnu og heildstæða þingsályktunartillögu um matvælastefnu sem verður kynnt á matvælaþingi 22. nóvember. Í samstarfi við utanríkisráðuneytið er unnið að endurskoðun viðskiptasamnings við ESB um landbúnaðarafurðir sem miðar að því að auka jafnvægi í samningnum og tryggja hagsmuni Íslands til hagsbóta fyrir neytendur og framleiðendur landbúnaðarafurða. Loks má nefna að fyrir liggur vinna við endurnýjun samnings við Landbúnaðarháskólann um rannsóknir í þágu landbúnaðar sem rennur út á fyrri hluta ársins. Þar þarf að horfa sérstaklega til grunnrannsókna og hagnýtra rannsókna á sviði akuryrkju, stuðla að jurtakynbótum, vönduðu yrkjavali og hagkvæmustu mögulegu ræktunartækni.

Þetta voru, virðulegi forseti, nokkur dæmi, engan veginn tæmandi, en þó þannig að hv. þingmanni má vera ljóst að fjöldamörg verkefni á þessu sviði eru í gangi í ráðuneytinu og gæti ég jafnvel nefnt fleiri í síðara svari mínu.