aðgerðir til að treysta innlenda matvælaframleiðslu.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni enn og aftur fyrir orðaskiptin. Við höfum nú hafið, má segja, aðdragandann að endurskoðunartímabilinu og ég hef væntingar til þess að það verði ekki 900 dagar eins og síðasta endurskoðunartímabil var heldur skemmra og að við náum betur utan um það markmið sem ég vil kynna til sögunnar sem eitt af þremur meginmarkmiðum endurskoðunarinnar, sem er einföldun kerfisins. Ég held að það sé öllum til góðs, bæði ríkinu, sem er þarna að leggja fram fjármagn, og ekki síður bændum; að kerfið sé gagnsætt, markmiðin séu skýr, þau séu mælanleg o.s.frv. Þetta er mikill bútasaumur, þetta kerfi hefur orðið til með alls konar breytingum, stórum og smáum, yfir langan tíma. Ég set því einföldun algerlega á oddinn og ég hef gert bændum grein fyrir því og ég held að við séum sammála um það.
Ég vil síðan nefna hin tvö meginmálin sem varða meira inntak og efni samninganna og snúast þá ekki um fjölda búgreina eða slíkt heldur annars vegar um loftslagsáherslur, þ.e. að við séum að stíga skref í því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og minnka kolefnisspor, og hins vegar um fæðuöryggi, með hringrásarhagkerfi og aukinni áherslu á fullvinnslu og það að við séum að nýta þá lífrænu ferla sem við erum með í okkar kerfum. Þetta má gera með fleiri en einni búgrein en eins og komið hefur fram fyrr í dag erum við nánast að skila okkar hvað varðar kjöt og mjólk og sóknarfærin eru mjög mikil í grænmeti og korni.