kornrækt.
Forseti. Hv. þingmanni þakka ég fyrir fyrirspurnirnar. Áður en ég byrja á því að svara spurningum hv. þingmanns, eins og þær koma fyrir, þá held ég að sé mikilvægt að við áttum okkur á því að við framleiddum á miðöldum kornið sem við þurftum á Íslandi og með allri þeirri þekkingu, framförum, samgöngum, fjarskiptum o.s.frv. sem við ráðum yfir í dag þá getum við stefnt hærra. Landbúnaðurinn hefur og býr yfir gríðarlega miklum þrótti, mörgum tækifærum og miklum möguleikum þannig að mikilvægi innlendrar kornræktar er mikið og það er alveg ljóst að við getum gert miklu betur á þessu sviði og við ætlum okkur það. Í tillögum að landbúnaðarstefnu sem liggur fyrir núna og kemur til þingsins síðar á þessu þingi þá er líka fjallað um mikilvægi þess að efla kornrækt fyrir búfé og til manneldis sem er liður í því að tryggja fæðuöryggi á Íslandi. Eins og áður hefur komið fram þá er lagt til að stóraukinn kraftur verði lagður í að efla innlenda kornrækt í skýrslu spretthópsins og við höfum gert samning við Landbúnaðarháskóla Íslands eða falið honum að gera og vinna drög að aðgerðaáætlun til að efla kornrækt og sú vinna hófst formlega í ágúst síðastliðnum.
Markmið verkefnisins er þríþætt. Í fyrsta lagi að kanna fýsileika á rekstri kornsamlags hér á landi, í öðru lagi að leggja fram aðgerðaáætlun til að efla kornrækt á Íslandi og í þriðja lagi að skilgreina þarfir á lágmarksbirgðum kornvöru í landinu. Efling kornmarkaðarins verður stærsta viðfangsefni verkefnisins sem mun fela í sér tillögur að nauðsynlegri innviðauppbyggingu og ábendingum um hagkvæmustu leiðir til þeirrar uppbyggingar, svo sem á sviði kynbóta, bútækni og aðlögun stuðningskerfisins til að búa til frekari hvata til ræktunar á korni. Markaðslegir þættir eru taldir ein helsta ástæðan fyrir samdrættinum sem hefur verið undanfarin ár, enda eru innlend viðskipti með korn afar takmörkuð. Stærstur hluti af kornframleiðslunni er notaður sem fóður innan bús, eins og hér kom fram, og það er ekki til félag sem getur keypt, selt eða geymt korn í stórum mæli og bændur hafa þar með ekki tryggingu fyrir því að geta selt sitt korn þannig að það þarf með einhverju móti að koma að því að annaðhvort styðja við með beinum hætti frumkvæði af þessu tagi eða þá þannig að ríkið myndi sjálft stíga inn, þetta eru allt möguleikar sem eru til skoðunar og Landbúnaðarháskólinn mun gera tillögur um það. Við viljum líka fara sérstaklega yfir möguleikann á að bæta kornmarkaðinn sem slíkan og þessar tillögur eru væntanlegar í mars á næsta ári. Það þarf að leggja mat á hagkvæmni leiða til að reka kornsamlag á hentugan og hagkvæman hátt fyrir Ísland og skoða hvaða leiðir hafa verið farnar á Norðurlöndunum. Það verða greind möguleg rekstrar- og viðskiptaform, eignarhald, sölumöguleikar kornsamlaga í framtíðinni og áhættugreining. Kornsamlög eru rekin með ýmsu móti erlendis, til að mynda af hinu opinbera eða sem samvinnufélög, sem er líka til í dæminu, og það ætti að vera greið leið sögulega og í því umhverfi sem íslenskur landbúnaður er. Þau gætu verið í einkaeigu eða í einhverri blandaðri útgáfu af þessu. Það verður lagt mat á kosti og galla hvers forms í þessari skýrslu og það náttúrlega snýst um það líka að skoða sérstaklega sértækar aðstæður sem gilda hér á landi, mismunandi tækifæri og möguleika eftir landshlutum o.s.frv. og líka eftir því hversu langt bændur eru komnir í að þróa kornrækt.
Ég heimsótti bændur á Suðurlandi og í Gunnarsholti og var bæði glöð og hissa yfir því hvað þetta var öflugt, tegundirnar margar og hvað í raun og veru framtíðarsýnin var sterk. Við viljum líka í skýrslunni að áhugi bænda verði kortlagður og kannaðir möguleikar á áhuga þeirra, og þeirra félagasamtaka mögulega, að verkefni sem slíku og ég hlakka mikið til að fá niðurstöður verkefnisins í hendurnar þegar þær liggja fyrir á vormánuðum og ég vænti þess að það verði tilefni til þess að gera þinginu grein fyrir því, annaðhvort hér úr ræðustól Alþingis eða á sérstökum fundi með atvinnuveganefnd.