kornrækt.
Virðulegi forseti. Ég kem hér í pontu fyrst og fremst til að fagna því að hér skuli fara fram umræða um kornrækt í þingsal. Það er mjög mikilvægt, sem hæstv. ráðherra kom hér inn á, að það sé verið að fela Landbúnaðarháskólanum að gera úttekt og að það sé verið að vinna að aukinni þekkingu um plönturnar, ræktunaraðferðir og tæknina. Það sé verið að ræða hvaða innviði þurfi til að stunda kornrækt hér, ræða leiðir til að koma korni á markað, og hvaða leiðir séu vænlegastar þar. Hvort það þurfi mögulega hvata og þá hvaða hvata og svo tryggingamálin sem ég tel vera mjög mikilvæg í kornrækt sem og allri útiræktun grænmetis og afar áríðandi er að fylgja eftir þeirri skýrslu sem þar er komin fram.
Fyrst og fremst fagna ég þessari umræðu um að mikil tækifæri séu í kornrækt en við þurfum að horfa á ólíkar aðstæður í ólíkum héruðum.