153. löggjafarþing — 18. fundur,  17. okt. 2022.

kornrækt.

259. mál
[17:26]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Ingibjörg Isaksen) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. matvælaráðherra greinargóð svör. Það er afar ánægjulegt að heyra að það sé strax farin af stað vinna og að við megum vænta skýrslu og upplýsinga frá hæstv. ráðherra innan fárra mánaða. Ég tek undir það sem hæstv. ráðherra sagði varðandi samlegð, það er mikilvægt að finna hvaða fyrirkomulag hentar hér á landi og skoða það sem vel hefur tekist en einnig að það séu mikil tækifæri fyrir íslenska þjóð að gera enn betur í kornrækt og þar leika bændur að sjálfsögðu stærsta hlutverkið. Maður finnur það og sér að þar er elja, þrautseigja og mikill áhugi en líka þekking til að takast á við verkefnið. Hins vegar þarf að grípa eitthvað inn í til að styðja við kornframleiðslu og koma henni almennilega af stað.

Í þessu samhengi langar mig að lokum að koma inn á annan þátt sem skiptir einnig verulegu máli samhliða uppbyggingu innviða vegna kornræktar, en sá liður snýr að tryggingavernd kornbænda. Eins og staðan er í dag geta bændur sem stunda kornrækt ekki keypt tryggingar, t.d. vegna áfalla af völdum náttúruhamfara eða veðurs. Það er ótækt að bændur sitji einir uppi með tjón á uppskeru líkt og gerðist í kjölfar óveðursins hér um daginn. Áætlað tjón á kornuppskeru í Eyjafirði vegna hvassviðris eina helgi í september er áætlað á bilinu 25–30 millj. kr., auk þess sem áætlað er að frostskemmdir, sem urðu sums staðar í ágúst, hafi eyðilagt uppskeru fyrir 10–12 millj. kr. Í Evrópu má víða finna tryggingakerfi sem tekur á slíku tjóni og við verðum að búa svo um hnútana að það sama gildi um íslenska kornbændur. Eins og staðan er í dag er kornrækt því afar áhættusöm búgrein.

Hæstv. forsætisráðherra hefur rætt það opinberlega að skoða eigi að sameina Bjargráðasjóð og hamfarasjóð og hæstv. matvælaráðherra nefndi það einnig í máli sínu hér áðan og mér skilst að sú vinna sé á borði hæstv. matvælaráðherra. (Forseti hringir.) Getur hæstv. ráðherra sagt okkur hvort vinna sé hafin við að endurskoða tryggingavernd fyrir kornbændur og einnig hvort einhver vinna sé í gangi varðandi sameiningu sjóðanna?