kornrækt.
Virðulegur forseti. Eins og kom lítillega fram í samtali mínu við hv. þm. Þórarin Inga Pétursson hér áðan þá hef ég undir höndum nýja skýrslu starfshóps sem fjallaði sérstaklega um verkefni Bjargráðasjóðs. Starfshópurinn leggur til nokkrar útfærslur á því með hvaða hætti þarf að bregðast við breyttum tímum og nefnir sérstaklega sem eina sviðsmynd í þeirri stöðu að það verði skoðað að sameina þessa tvo sjóði, það er Bjargráðasjóð og Náttúruhamfaratryggingu Íslands. Bjargráðasjóður fellur undir mitt ráðuneyti, náttúruhamfaratrygging ekki en ég hef samt sem áður farið fram á það við stjórn sjóðsins að hún skoði sameiningu þessara tveggja sjóða um leið og það þyrfti að gera verulegar endurbætur á fyrirkomulagi tryggingaverndar sem bændur eiga kost á. En nú er það auðvitað þannig að það er alltaf einhver sem borgar tryggingarnar þannig að allt er þetta undir þegar verið er að skoða þessi mál. Sums staðar hefur verið farin sú leið að ríkið hefur tekið þátt í að greiða niður iðgjöld. Í Vesturheimi hefur það verið gert en það hefur hins vegar ekki tíðkast mikið í Evrópu, en það eru ýmsar leiðir sem hægt væri að fara. Ég held að okkur sé öllum ljóst að bregðast þurfi við stöðunni eins og hún er núna enda er þessu fyrirkomulagi komið á laggirnar í allt öðru umhverfi. Það breytir því ekki að þegar maður spyr kornbændur: Hver er mesta ögrunin við að reyna að vera kornbóndi á Íslandi? Þá svara þeir: Það er rokið. Við vitum það að í ljósi loftslagsbreytinga verður ekki minna um rok (Forseti hringir.) á næstunni. En sem betur fer er það líka þannig að inni á milli eru metár eins og kornræktarárið í fyrra.