153. löggjafarþing — 18. fundur,  17. okt. 2022.

fjarnám fólks í sérstökum aðstæðum.

254. mál
[17:40]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir. Það er rétt að við þurfum að auka sveigjanleika enn frekar í háskólakerfinu. Umhverfi sjálfstæðra háskóla hér á landi er auðvitað undir háskólunum komið, að þeir taki þátt í alþjóðlegri samkeppni um nemendur og standi þar vel að vígi gagnvart íslenskum nemendum sem vilja hafa aukið aðgengi að námi og svari kalli samtímans um aukinn sveigjanleika, hvort sem það er fyrir þessa nemendur, eins og hv. þingmaður nefnir, sem voru útsjónarsamir í heimsfaraldri, eða þá sem eiga ekki annarra kosta völ en að stunda háskólanám sitt í fjarnámi. Við eigum framúrskarandi háskóla sem eru öflugir og eru alltaf að bæta við möguleikum í fjarnámi. En þar er líka algjört lykilatriði að búa til fjárhagslega hvata fyrir skólana til að gera enn betur og að vinna saman í því að endurspegla nám sem t.d. hefur ekki nú þegar verið kennt í fjarnámi, t.d. menntun á sviði heilbrigðisvísinda, þar sem því verður komið við, í þessum STEM-greinum, eins og þær eru kallaðar, tæknimenntun, verkfræði og fleira þar sem kallað er eftir auknu aðgengi og vantar starfsfólk í. Þarna er þá kominn fjárhagslegur hvati með samstarfssjóði háskóla til að stíga skref í þessa átt og ég hlakka til að sjá tillögur háskólanna.