153. löggjafarþing — 18. fundur,  17. okt. 2022.

Samstarfssjóður háskóla og fjarnám.

255. mál
[17:45]
Horfa

háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra (Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir) (S):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að koma hér og ræða samstarfssjóðinn sérstaklega og vekja athygli á því og fá aðeins nánari mynd á hann, enda erum við að ræða hér tækifæri og fyrsta skrefið í ákveðnum hvata varðandi fjármögnun háskólanna. Fjármögnun háskólanna hefur verið í ákveðnum lás í nokkur ár. Til að einfalda myndina hefur fjármagninu til háskólanna bara verið úthlutað vegna fjölda nemenda. Þar er ekki hvati til neins annars. Svo eru skólarnir kannski með eigið fjármögnunarlíkan um hvernig þeir útvista peningum innan sinna raða. En hér erum við að horfa til fjármuna sem voru til inni í kerfinu og ég forgangsraðaði í samstarfssjóð til að stuðla að jafnræði og gagnsæi við úthlutun. Þannig að bæði erum við að horfa á það að búa til ákveðna hvata, eins og hv. þingmaður kemur inn á, en ekki síst er það starf sjóðsins að búa til jafnræði og gagnsæi gagnvart þeim fjármunum sem við erum síðan að veita til háskólanna sjö ofan á hina hefðbundnu fjárlagaliði. Við erum með sjö háskóla í talsvert litlu landi og við þurfum að líta til þess að ýta undir nýsköpun og framfarir og auka samstarf sem eykur gæði. Þar er einn áhersluliður hjá mér fjarnám, nám óháð staðsetningu. Ég vænti þess að háskólarnir sýni frumkvæði í greiningu á samstarfsmöguleikum sín á milli við val verkefna. Skólarnir munu síðan sækja um í sjóðinn og 1 milljarði verður úthlutað nú fyrir áramót og síðan öðrum á næsta ári.

Ég held að þetta sé skýrt dæmi um það hvernig tækifæri eru til að bæta gæði háskólanáms, auka tækifæri nemenda út af þeim áherslum sem ég set þarna í sjóðnum. Þær koma ekki úr lausu lofti. Þær eru settar á grundvelli þess sem samfélagið þarfnast. Og hvert er hlutverk háskólanna í breyttum veruleika? Okkur vantar fleiri í heilbrigðisvísindi, menntavísindi, stærðfræði, tækni-, vísinda- og verkfræðigreinar þar sem er sérstök áhersla. Það er mikil krafa um meira fjarnám, eins og hv. þingmaður ræðir hér sérstaklega, en líka um betra meistara- og doktorsnám þar sem eru gríðarleg tækifæri til samstarfs í litlum einingum meistaranáms hjá skólunum, minni yfirbyggingu hjá litlum skólum sem geta nýtt sér tækifæri stærri skólanna og séð samstarfsfleti. Ég lít á þetta sem fyrsta skrefið gagnvart því að átta okkur á því hvernig við getum nýtt þá fjármuni, yfir 50 milljarða, sem fara til háskólanna á hverju ári til að ýta undir þarfir samfélagsins á sama tíma.

Hvað varðar þarfir samfélagsins eigum við hv. þingmaður það sameiginlegt að hafa heyrt af ríku ákalli um aukið stafrænt nám og nám óháð staðsetningu og það er þess vegna sem ég set það inn sem áhersluatriði. Það er sett inn sem áhersluatriði þannig að ef verkefnin sem eru samstarfsverkefni lúta að auknu fjarnámi þá eiga þau möguleika á að sækja um í þennan 2 milljarða sjóð. Og það er enginn smáhvati fyrir skólana að stíga slík skref, hvort sem það er að þróa fjarnám í námi sem ekki hefur verið kennt í fjarnámi nú þegar og uppfyllir gæðakröfur eða þá að spegla nám annars skóla í fjarnámi eins og við sjáum að hefur nú þegar verið gert á Akureyri og fyrir austan.