153. löggjafarþing — 18. fundur,  17. okt. 2022.

Samstarfssjóður háskóla og fjarnám.

255. mál
[17:50]
Horfa

Fyrirspyrjandi (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og finnst af svörum hæstv. ráðherra að það liggi gríðarleg tækifæri til framþróunar í samstarfssjóði háskóla og einmitt ef horft er á fleiri markmið með starfsemi sjóðsins og þeim spilað saman við markmiðið um nám óháð staðsetningu. Þá sé ég fyrir mér að við getum séð mjög margt spennandi gerast á næstu árum sem skiptir máli fyrir landsbyggðina. Kannski, eins og hæstv. ráðherra kom inn á undir lok ræðu sinnar, þá sé ég fyrir mér einmitt að samstarfsverkefni sem Háskólinn á Akureyri og Háskólinn í Reykjavík hafa unnið að í nokkur ár með íbúum og atvinnulífi á Austurlandi geti smollið þarna inn í og tikkað í nokkur box hjá sjóðnum.

Svo velti ég líka fyrir mér hvernig — af því að sjóðurinn gengur svolítið út á samstarf háskóla, sem ég tek heils hugar undir að er mikilvægt — samstarf við aðra aðila, eins og t.d. símenntunarmiðstöðvar landshlutanna, sem sinna þjónustu við fjarnemana, getur komið þarna inn í, eða samstarf við atvinnulífið eða jafnvel erlenda háskóla sem eru í samstarfi við einn eða fleiri háskóla eða einhver samfélög hér á landi, eins og við þekkjum dæmi um í gegnum rannsóknasetur. En fyrst og fremst finnst mér bara mjög mikilvægt að tala um þennan sjóð og vekja athygli á tækifærunum sem þarna liggja og velti því einmitt fyrir mér hvort sjóðurinn var fyrst og fremst kynntur inn í háskólana eða hvort fram hefur farið mikil kynning út á við.