153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

Störf þingsins.

[13:48]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegur forseti. Hún þróast og þroskast áfram umræðan um útlendingamál. Það er verið að segja margt í biðinni eftir boðuðum hertum aðgerðum dómsmálaráðherra. Við ætlum að vanda okkur í þeirri umræðu þegar við tölum um fólkið sjálft sem er í neyðinni en við ætlum líka að leyfa okkur að takast á um hugmyndir og grunnstefnu og halda til haga þeirri mennsku sem nauðsynlegt er að hafa í þessum málaflokki sem og mörgum öðrum.

Mig langar aðeins að gera að umtalsefni þá atburðarás sem verið hefur síðustu daga. Hún er líka svo lýsandi fyrir ríkisstjórnarsamstarfið og ríkisstjórnarflokkana sem eru fullir af orku og vilja til verka en komast ekki lönd né strönd vegna innanmeina og deilna. Deilurnar við ríkisstjórnarborðið eru handbremsa í þeim verkefnum sem ráðast þarf í.

Á dögunum stígur hæstv. dómsmálaráðherra fram og talar fyrir harðari stefnu í útlendingamálum. Það sé stjórnleysi í málaflokknum og einhvers konar búðir þurfi fyrir fólk sem eigi að vera með skertu ferðafrelsi. Það þýðir síðan aftur að fjöldi fólks, líka börn, myndi vera í slíkum aðstæðum mánuðum og árum saman. Hann er svo klappaður upp af flokksfélögum sínum, mjög ákaft. VG rís upp og mótmælir: Við viljum engar lokaðar búðir, ekkert skert ferðafrelsi, hér ríkir ekkert stjórnleysi, hertar aðgerðir verða ekki á okkar vakt. Ég spurði svo formann Framsóknarflokksins um afstöðu hans til málsins í gær og fékk ákaflega framsóknarlegt svar sem var efnislega svohljóðandi: Ég svara því seinna. Þá skal ég segja þér fyrir hvað ég stend og hvað ég vil verja. Formanni Framsóknar er hins vegar ákveðin vorkunn. Hann er eins og örmagna foreldri sem þarf sífellt að þola rifrildi og ósamkomulag barnanna sem sitja á vinstri og hægri hönd við matarborðið. Slíkt tekur eðlilega á taugarnar til lengri tíma. Þetta gerist í hverju málinu á fætur öðru. Þetta er að gerast í orkumálum, þetta er að gerast í landnýtingarmálum, í auðlindamálum, í skattamálum og núna í útlendingamálum. Og þetta er ekki tæmandi upptalning.

Það gengur ekki til lengdar að hafa ríkisstjórn í landinu sem hefur þrjár skoðanir á hverju máli sem er til umfjöllunar í núinu. Það er skiljanlegt að flokkarnir séu ólíkir og hafi hver sína sýn en þegar þeir koma sér ekki saman um stefnu, (Forseti hringir.) aftur og aftur, þá er þetta ríkisstjórnarsamstarf ekki sjálfbært fyrir þjóðina. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)