um fundarstjórn.
Herra forseti. Það segir ákveðna sögu að við séum hér að ræða virðingarleysi framkvæmdarvaldsins gagnvart löggjafarvaldinu þegar við erum að sigla inn í atkvæðagreiðslu með tóman ráðherrabekk þó að ráðherrarnir séu þessa dagana allir þingmenn samhliða því embætti og hafi þess vegna viðveruskyldu hér í salnum, sérstaklega þegar við erum að greiða atkvæði. Tómur ráðherrabekkur og svaraleysi í óundirbúnum fyrirspurnum — það er meira en það í óundirbúnum fyrirspurnum, það er eins og sumir ráðherrar séu farnir að líta á það sem listform að svara engu í fyrri umferð og mæta svo í seinni umferð með útúrsnúning og derring og ekkert annað, vitandi að það kemur enginn aftur að spyrja. Þingmaðurinn er búinn að tæma sinn rétt og þá getur ráðherrann ekki bara sleppt því að svara, hann getur verið með dólg.
Auðvitað vill enginn ráðherra, frekar en nokkur þingmaður utan Sjálfstæðisflokksins, lýsa skýrri afstöðu til hugmynda Jóns Gunnarssonar um flóttamannafangelsi sem hann teflir fram og talar um eins og það sé bara að fara að gerast. Þá fer kannski að skína í það að mögulega eru ekki allir þingmenn stjórnarliðsins til í að (Forseti hringir.) setja flóttafólk í fangelsi sem maður hefði haldið að væri sjálfsagt en er það greinilega ekki.