um fundarstjórn.
Herra forseti. Í þessu samhengi þá langar mig að biðja hæstv. forseta að upplýsa okkur sem komum hér reglulega í liðinn óundirbúnar fyrirspurnir til ráðherra hvort það er komið upp eitthvert nýtt fyrirkomulag þar sem ráðherrar hafa einhvers lags fríspil, „Get Out of Jail Free Card“ eins og það heitir í borðspilum. Með vísan í að það eigi eftir að ræða einhver mál í ráðherranefnd um hitt og þetta — ráðherranefndirnar þessar hafa enga stjórnskipulega stöðu. Það er ekki ósanngjörn krafa okkar þingmanna að sérstaklega formenn stjórnarflokka gefi upp afstöðu sína til flókinna mála. Ég hvet hæstv. ráðherra sem fá spurningar til sín til að svara þeim samviskusamlega og eins og samviskan býður þeim en þessi vísan í að ráðherrar geti ekki svarað fyrirspurn eða vilji það ekki fyrr en búið er að ræða mál í ráðherranefnd um málaflokkinn er eitthvað sem ég man ekki eftir að hafi verið notað sem afsökun á fyrri stigum.