153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

almenn hegningarlög.

45. mál
[14:58]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Það eru 15 ár síðan samkynja hjónabönd voru leyfð að lögum. Við erum samt ekki komin með jafna stöðu fólks eftir hjúskaparmynstri. Við erum enn á þeim stað að lögin mismuna foreldrum þar sem báðir aðilarnir eru konur. Þó að liðin séu 15 ár er enn ekki búið að klára þetta. Það er enn eitt dæmið um það að hér innan húss hafi verið stigin jákvæð skref en þau hafa aldrei, ég held að ég geti bara sagt aldrei, verið stigin alla leið eins og þyrfti að vera. Hvernig við getum tekið á birtingarmyndum fordóma og ofbeldis í skólakerfinu er náttúrlega stóra spurningin. Þar er gróðrarstía fyrir misbeitingu valds á milli fólks. Það þarf að gera mjög margt til að taka á því. En þar erum við aftur komin að því að ríkisstjórnin, fyrir nokkrum árum, sagðist vera að fara að gera það. Þetta er undarlegt sinnuleysi gagnvart málaflokkum sem ríkisstjórnin segist vilja sinna vel en gerir ekki. Við samþykktum hér 2019 áætlun um aðgerðir gegn ofbeldi í íslensku samfélagi. Þar var talað um kynjafræði, kynfræðslu, námsefni, fræðsluefni fyrir kennara. Þetta var allt þarna. Þetta vantar enn þá. Þar var líka talað um, kannski ekki alveg fullkomlega skýrum orðum, hvernig ætti að taka á viðbragði við kynferðislegri áreitni eða ofbeldi innan skólanna og við sjáum af mótmælum framhaldsskólanema nú síðustu vikur að það hefur (Forseti hringir.) sko aldeilis ekki verið gert. Stjórnvöld eru að bregðast því að klára öll góðu málin sem þau monta sig af að hafa sett af stað.