153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

almenn hegningarlög.

45. mál
[15:04]
Horfa

Flm. (Hanna Katrín Friðriksson) (V):

Frú forseti. Mig langaði bara rétt að loka umræðunni og þakka kærlega fyrir þá umræðu sem hér hefur orðið. Mig langar að nefna það sem hv. þm. Inga Björk Margrétar Bjarnadóttir kom inn á með samtvinnunina. Þetta er gríðarlega mikilvæg ábending og ég mun óska eftir því að allsherjar- og menntamálanefnd taki þetta til sérstakrar umfjöllunar í meðferð málsins. Auðvitað skiptir þetta öllu máli. Rétt eins og kom fram í máli hv. þingmanns, og hv. þm. Andrés Ingi Jónsson nefndi líka, eru enn þessir vankantar á framkvæmd laga um jafnan rétt í hjónabandi. Það verður að segjast eins og er að það vekur svo mikla ánægju, það verður svo mikil gleði, þegar lagasetning verður til þess að bæta svo um munar réttindi hóps sem lengi hefur beðið eftir slíkum réttindum. Þessi 80% eða 90% sem eru kláruð í upphafi skyggja á og það verður til þess að þau skref sem upp á vantar í lokin eru ekki stigin nema sérstaklega sé bent á það. Ég þakka kærlega fyrir það.

Ég ætla ekki að orðlengja þetta frekar. Þetta mál er tiltölulega einfalt í mikilvægi sínu og mikilvægt í einfaldleika sínum, ef svo má segja. Ég held að það sé gríðarlega mikilvægt, og ég ætla að leyfa mér að vænta þess, að þetta verði klárað þannig að við lokum á þessa glufu. Hafi þetta verið mikilvægt fyrir tæpu ári, þegar ég var að vinna þetta mál, þá er það því miður mun mikilvægara núna. Ég ætla að láta það verða lokaorðin.