153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[15:06]
Horfa

Flm. (Óli Björn Kárason) (S):

Frú forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um félagafrelsi á vinnumarkaði. Þetta er 24. mál á þskj. 24. Ásamt þeim sem hér stendur standa að frumvarpinu allir þingmenn Sjálfstæðisflokksins utan ráðherra og hæstv. forseta Alþingis.

Í 74. gr. stjórnarskrárinnar er öllum tryggt félagafrelsi. Allir eiga rétt til að stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi, þ.m.t. stjórnmálafélög og stéttarfélög, án þess að sækja um leyfi til þess. Það er tekið skýrt fram í þessari grein stjórnarskrárinnar að engan megi skylda til aðildar að félagi en þó megi með lögum kveða á um slíka skyldu ef það er nauðsynlegt til að félag geti sinnt lögmætu hlutverki vegna almannahagsmuna eða réttinda annarra. Þrátt fyrir þessi skýru ákvæði 74. gr. stjórnarskrárinnar er félagafrelsi í raun ekki virt á íslenskum vinnumarkaði. Almenn löggjöf takmarkar rétt manna til þess að velja sér félag eða standa utan félags og þar er gengið lengra en í öðrum nágrannaríkjum okkar.

Þegar mannréttindakafli stjórnarskrárinnar var lögfestur árið 1995 var mikilvægt nýmæli samþykkt í 2. mgr. 74. gr. Þar er, eins og ég gat um áðan, beinlínis kveðið á um rétt manna til að standa utan félags. Litlar eða engar breytingar hafa hins vegar verið gerðar á vinnumarkaðslöggjöfinni frá þeim tíma til að tryggja að þetta ákvæði nái fram að ganga og úrskurðir dómstóla virðast ekki hafa tekið mið af þeim breytingum sem voru gerðar á stjórnarskránni árið 1995.

Það er augljóst, frú forseti, að í mínum huga er vinnumarkaðslöggjöfin barn síns tíma og í mörgu úrelt. Hún þrengir að félagafrelsi. Því er illa hægt að halda því fram að launafólk hafi raunverulegt frelsi til að ákveða hvort það standi utan stéttarfélags eða ekki. Þrátt fyrir að launamanni sé heimilt, samkvæmt orðanna hljóðan, að standa utan stéttarfélags hefur lagaumgjörðin með öðrum hætti í raun orðið til þess að valfrelsið er að nafninu til en ekki á borði. Dæmi um þetta eru lög um kjarasamninga opinberra starfsmanna þar sem kveðið er á um skyldu ófélagsbundinna starfsmanna til greiðslu iðgjalds stéttarfélags sem hann ætti, eins og þar segir, að tilheyra. Á almennum vinnumarkaði eru lögin hins vegar óskýr um það hvort slík greiðsluskylda sé fyrir hendi eða ekki. Af orðalagi 2. mgr. 6. gr. starfskjaralaga má ráða að slík skylda sé einungis fyrir hendi þegar sérstaklega er kveðið á um hana í kjarasamningum.

Það er því augljóst í mínum huga og flutningsmanna að það verður að breyta lögunum þannig að launafólk utan stéttarfélags sé ekki þvingað til að greiða iðgjald til félags sem það á enga aðild að. Um leið sé það tryggt og komið í veg fyrir að aðilar vinnumarkaðarins, þ.e. atvinnurekendur og verkalýðsfélög, taki sér það vald að leggja slíka skyldu á launafólk í kjarasamningum án þess að það hafi nokkuð um það að segja. Það er hægt samkvæmt gildandi lögum, þó að líklega sé aðeins eitt dæmi um að slík skylda sé fyrir hendi og það er í kjarasamningum sjómanna, fari ég rétt með.

Meginmarkmið frumvarpsins er sem sagt að tryggja rétt launamanna til að velja sér stéttarfélag, leggja bann við forgangsréttarákvæðum í kjarasamningum, vernda rétt launamanna til að standa utan verkfalla stéttarfélaga sem þeir tilheyra ekki og afnema og koma í veg fyrir greiðsluskyldu ófélagsbundinna launamanna þar sem þess er krafist í lögum, svo sem varðandi opinbera starfsmenn, eða í kjarasamningum ef mönnum dettur svo í hug.

Í einfaldleika sínum getum við sagt að með frumvarpi þessu, nái það fram að ganga, sé Alþingi að tryggja að íslenskt launafólk búi við sömu réttindi og launafólk í nágrannalöndum okkar. Að þessu leyti er frumvarpið ekki róttækara en það. Við erum að tryggja íslensku launafólki sömu réttindi og launafólk hefur í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og öðrum þeim löndum sem við viljum gjarnan bera okkur saman við.

Ég held að það sé nauðsynlegt fyrir okkur í þessum sal að horfast í augu við það að þrátt fyrir að félagafrelsið njóti í raun ríkari verndar samkvæmt íslensku stjórnarskránni en gengur og gerist í öðrum löndum þá hefur almenn löggjöf gert það að verkum að réttur manna til þess að velja sér félag eða standa utan félags er mun takmarkaðri en í öðrum löndum. Stjórnarskráin tryggir þessi réttindi í orði en laga- og dómaframkvæmd önnur hefur komið í veg fyrir að réttindin séu á borði. Ólíkt öðrum vestrænum ríkjum hefur vinnumarkaðslöggjöfin hér á landi ekki tekið fullnægjandi breytingum til að tryggja félagafrelsi á íslenskum vinnumarkaði. Eins og ég vék að áðan urðu allir helstu lagabálkar vinnumarkaðslöggjafarinnar að lögum áður en mannréttindakafli stjórnarskrárinnar var lögfestur hér árið 1995. Litlar breytingar hafa orðið á þessari löggjöf á undanförnum 27 árum og túlkun dómstóla virðist vera með þeim hætti að hún hefur verið óbreytt þrátt fyrir þau nýmæli sem tekin voru upp í mannréttindakafla stjórnarskrárinnar árið 1995. Það er þess vegna sem ég segi að gildandi vinnumarkaðslöggjöf gangi gegn þeim stjórnarskrárvörðu réttindum sem öllum Íslendingum eiga að vera tryggð, ekki síst íslensku launafólki á vinnumarkaði.

Við skulum aðeins fara yfir hvað þetta gæti þýtt. Nái þetta frumvarp fram að ganga breytist hugsanlega ýmislegt. Við núverandi lagaramma eru utanfélagsmenn bundnir af ákvörðun stéttarfélags um vinnustöðvun, þ.e. verkfall og verkbann, og þeim er skylt að leggja niður störf í boði þess stéttarfélags þrátt fyrir að þeir eigi ekki aðild að félaginu og hafi ekki greitt til félagsins og vilji ekki vera í félaginu. Utanfélagsmanni er sem sagt meinað að vinna af félagi sem hann er ekki í, án þess meira að segja að honum sé bætt það eins og félagsmönnum. Honum er ekki bætt það, hvorki úr verkfallssjóðum né með atvinnuleysisbótum. Það má segja að réttindi utanfélagsmanna við núverandi lagaumhverfi séu enn takmarkaðri en ef hreinlega væri kveðið á um skylduaðild að stéttarfélögum í lögum. Þá væri a.m.k. tryggð sú þjónusta og þau réttindi sem í félagsaðildinni felast, þar sem utanfélagsmaðurinn nýtur nú minni réttinda og þjónustu stéttarfélaga en ber sömu skyldur og fullgildur félagsmaður. Við núverandi löggjöf er því gengið verulega á félaga- og í rauninni atvinnufrelsi fólks.

Á Íslandi er nokkuð sem kallast forgangsréttarákvæði í kjarasamningum. Slík ákvæði ganga gegn félagafrelsi launamanna enda má leggja þau að jöfnu við skylduaðild að stéttarfélagi þar sem fólk er í raun útilokað frá tilteknum störfum gangi það ekki í viðkomandi stéttarfélag sem hefur forgang samkvæmt kjarasamningum sem eru varðir með lögum. Nánast öll vestræn lönd hafa bannað slíkt ákvæði með vísan til félagafrelsis launamanna. Þá hefur Mannréttindadómstóll Evrópu fjallað um forgangsréttarákvæði í máli Sørensen og Rasmussen gegn Danmörku frá 11. janúar 2006. Af dómnum má draga þá ályktun að bæði forgangsréttarákvæði og ákvæði um skylduaðild brjóti gegn 11. gr. mannréttindasáttmála Evrópu sem við höfum skrifað undir og gefið fyrirheit um að uppfylla þær skyldur sem þar eru lagðar á okkur.

Það er auðvitað svo að samkvæmt lögum um rétt verkafólks til uppsagnarfrests frá störfum og til launa — nú ætla ég aðeins að fara í annað, ég er að fara aðeins á undan mér. Vandinn við forgangsréttarákvæði er auðvitað sá að þegar kemur að því að ráða þá skal sá sem er félagi í stéttarfélagi njóta forgangs. Þegar þær aðstæður kunna að skapast að segja þurfi upp starfsmönnum þá skal fyrst segja upp þeim sem er ófélagsbundinn en síðan þeim sem er félagi í verkalýðsfélagi. Þetta þýðir auðvitað að til að verja rétt sinn er launamanni nauðugur sá kostur að ganga í verkalýðsfélagið, bara til að verja sitt starf, vegna þess að vinnuveitanda, launagreiðandanum, er ekki heimilt samkvæmt gildandi lögum að beita mati við það og fara eftir hæfni og dugnaði starfsmanns þegar kemur að uppsögn. Slíkt er ekki heimilt. Réttarstaða þess sem ákveður, af ýmsum ástæðum, að standa utan stéttarfélags, m.a. vegna þess að hann kann að vera ósáttur við það hvernig stéttarfélagið vinnur, kann að vera ósáttur við þá pólitík sem rekin er innan stéttarfélagsins, kann að vera sannfærður um að stefna forystu viðkomandi stéttarfélags gangi gegn hagsmunum hans — þá er honum samt nauðugur sá kostur, til að verja sitt starf og standa jafnfætis öðrum, að ganga til liðs við félagið.

Því hefur verið haldið fram að nái þetta frumvarp fram að ganga þá muni það veikja verkalýðshreyfinguna. Ég hafna því. Ég hafna því, ekki bara vegna þess að ég hef meiri trú en svo á verkalýðshreyfingunni heldur vegna þess að ég er sannfærður um að þetta geti styrkt starfsemi verkalýðsfélaga. Af hverju? Jú, vegna þess að verkalýðsfélögin hafa alveg sérstaka hagsmuni af því að sannfæra launafólk um að hagsmunum þess sé best borgið með því að ganga til liðs við viðkomandi stéttarfélög. Þau munu leggja sig í líma við að gæta hagsmuna viðkomandi. Forysta verkalýðshreyfingarinnar mun skynja það að íslenskt launafólk mun fá meiri áhuga á réttindum sínum og kjörum og meiri áhuga á starfsemi verkalýðshreyfingarinnar en nú er, hættir að vera jafn afskiptalaust og það er, mun telja sér skylt, vegna þess að það tók sjálfstæða ákvörðun um að tilheyra félaginu, að taka þátt í því að velja sér forystu. En eins og við vitum öll þá er þátttaka í atkvæðagreiðslum þegar kemur að verkalýðsfélögum, forystu í verkalýðsfélögum, því miður mjög takmörkuð hér á Íslandi.

Þetta mun styrkja félögin. Það er eitthvað óeðlilegt við að það sé inni í — og ég ætla ekki að lýsa því sem reykfylltu bakherbergi þegar Samtök atvinnulífsins og verkalýðshreyfingin setjast niður og ganga frá kjarasamningum, að þau geri það með þeim hætti að þau svipti, í skjóli laga sem hafa verið samþykkt hér, úreltrar vinnumarkaðslöggjafar, íslenskt launafólk raunverulegu félagafrelsi eins og gert er. Ekki hrundi verkalýðshreyfingin eða samtök launafólks í Danmörku þegar lögunum var breytt í kjölfar niðurstöðu Mannréttindadómstóls Evrópu. Þeim lögum var breytt 2007. Forgangsréttarákvæði var afnumið og komið á raunverulegu félagafrelsi á dönskum vinnumarkaði. Ég hygg að leiðtogar danskra verkalýðsfélaga muni ekki taka undir það að þau standi veikari en íslenskir kollegar þeirra hér.

Ég ætla líka að minna á að Evrópunefnd um félagsleg réttindi hefur ítrekað bent á að forgangsréttarákvæði eins og þau eru viðhöfð hér á landi gangi gegn mannréttindasáttmála Evrópu. Okkar hlutverk hér í þessari virðulegu stofnun er auðvitað að gera allt sem í okkar valdi stendur til að það sem stendur í stjórnarskránni nái fram að ganga, að það sé ekki afnumið með einhverjum hætti með einhverri lagasetningu hér, að félagafrelsi sé virt. En við höfum líka þær skyldur, vegna þess að við höfum heitið því í samstarfi við aðrar þjóðir, að virða þá alþjóðamannréttindasáttmála sem við höfum skrifað undir. Þegar það liggur fyrir og dönsk stjórnvöld hafa verið dæmd fyrir sama brot og við erum að fremja þá eigum við að hlusta og við eigum að taka mark á því og við eigum að breyta lögum.

Frú forseti. Ég lít þannig á að íslenska ríkinu, íslenska löggjafanum, beri svo rík skylda til að gæta að mannréttindum borgaranna að ekki verði undan því komist að grípa til aðgerða, þegar löggjöf gengur gegn þeim réttindum, með lagabreytingum eins og hér er lagt til. Það er nefnilega þannig að þrátt fyrir að bæði jákvætt og neikvætt félagafrelsi sé kirfilega tryggt í stjórnarskránni, eins og ég vék að, hefur vinnumarkaðslöggjöfin ekki endurspeglað það frelsi. Markmið þessa frumvarps og markmið okkar sem stöndum að baki því er að tryggja slíka vernd og standa vörð um félagafrelsi íslensks launafólks, hvort heldur er á almennum vinnumarkaði eða hjá hinu opinbera. Það er nauðsynlegt að bregðast við með skýrum hætti og taka afstöðu gegn því fyrirkomulagi sem tíðkast hefur og tryggja landsmönnum öllum raunverulegt félagafrelsi og koma þannig í veg fyrir að launafólk sé svipt grundvallarréttindum sínum.

Ég vil taka það fram að hér er lagt til að lögin taki til allra stéttarfélaga og vinnuveitenda á íslenskum vinnumarkaði, almennum og hinum opinbera. Á hinn bóginn kann að vera nauðsynlegt að ráðast í sérstaka lagasetningu á þeim sviðum þar sem félagafrelsi er heldur ekki tryggt. Það á t.d. við um skylduaðild að lífeyrissjóðum, þ.e. að svipta íslenskt launafólk þeim rétti að velja sér eigin lífeyrissjóð. Það er risamál sem verður að taka fyrir hér af mikilli yfirvegun. En það má t.d. líka benda á skylduaðild að Lögmannafélagi Íslands. Ég vitnaði hér í upphafi til þess að í 74. gr. stjórnarskrárinnar er sagt að það megi þó skylda menn til að vera aðilar að ákveðnu félagi ef almannahagsmunir krefjast en þau rök eiga ekki við þegar kemur að skylduaðild að Lögmannafélagi Íslands. Ég hef ekki séð nein slík rök. Það skal tekið fram að þetta frumvarp nær ekki til þeirra laga en það kann að vera að það sé skynsamlegt, annaðhvort í framtíðinni eða jafnvel í vinnu þeirrar nefndar sem fær málið til umfjöllunar, að skoða það sérstaklega.

Frú forseti. Í hnotskurn: Við erum að berjast fyrir því, flutningsmenn, og við erum að vonast til þess að þingheimur sláist í lið með okkur, að tryggja íslensku launafólki sömu réttindi og launafólk nýtur í öðrum löndum sem við berum okkur saman við og á ég þá ekki síst við frændþjóðir okkar á Norðurlöndum — svo einfalt er það, þetta er ekki róttækara en það.

Frú forseti. Að lokinni þessari umræðu óska ég eftir að frumvarpið gangi til hv. velferðarnefndar.