félagafrelsi á vinnumarkaði.
Frú forseti. Það er ekkert voðalega oft sem við höfum tækifæri í þessum sal til að takast á um einhver grundvallaratriði. Mér finnst ánægjulegt að eiga orðastað við hv. þm. Jóhann Pál Jóhannsson um þetta. Ég átti ekki von á öðru en að grundvallarágreiningur væri á milli mín og hans. Ég fagna því hins vegar að hv. þingmaður fellur ekki í þá forarpytti sem við öll föllum stundum í með upphrópunum og gífuryrðum. Ég el því þá von í brjósti að við getum a.m.k. átt ágætt samtal, bæði hér í dag og síðar þegar við fjöllum um þetta mál. Hv. þingmaður var að vísu í hæðnistón að gera því skóna að allt í einu vildu þingmenn Sjálfstæðisflokksins, og þá sérstaklega ég, boða boð og bönn, þ.e. þegar kæmi að forgangsréttarákvæðum, að banna þau. Já, það er stundum þannig að við erum talsmenn þess að leggja bann við mismunun en það er verið að mismuna fólki eftir því hvort það stendur utan félags eða hefur ákveðið að vera félagi í ákveðnu félagi. Það særir réttlætiskennd mína þegar mismunun á sér stað á grundvelli þess hvort viðkomandi launamaður hefur tekið ákvörðun um að tilheyra ákveðnu stéttarfélagi eða ekki. Ég hafna því að hægt sé að verja það út frá mannréttindum og þeim skyldum sem við höfum gagnvart íslensku launafólki, gagnvart íslenskum almenningi og gagnvart alþjóðlegum skuldbindingum okkar, að það sé bara í lagi að beita hér mismunun og það sé óeðlilegt og gert tortryggilegt að lagt sé bann við mismunun á grundvelli félagsaðildar eða ekki.