153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[15:45]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Hér er talað um mismunun. Hv. þingmaður er ofboðslega upptekinn af einni mjög afmarkaðri gerð frelsis sem er þetta neikvæða félagafrelsi, frelsið til að standa utan tiltekinna félaga, og telur að að hér sé einhvers konar stórkostleg mismunun að eiga sér stað í íslensku samfélagi gagnvart þeim sem ekki tilheyra félögunum. Ég hef reyndar bent á að þetta frelsi til að standa utan félaga er nú þegar tryggt í íslenskum lögum. Gott og vel. Hv. þingmaður telur að í greiðsluskyldunni og forgangsréttarákvæðum felist de facto einhver mismunun og brot gegn neikvæðu félagafrelsi. Mér finnst það langsótt túlkun. Þetta er ekki mismunun af því tagi sem ég hef gríðarlegar áhyggjur af. Ég hef aldrei hitt manneskju sem kvelst sérstaklega undan því að neikvætt félagafrelsi, í þeim skilningi sem við ræðum hér í dag, sé ekki virt. Ég hef miklu meiri áhyggjur af ýmsu öðru ófrelsi í íslensku samfélagi og ýmissi annars konar mismunun sem á sér stað. Nú er það t.d. þannig að samkvæmt íslenskum lögum á fólk með fötlun rétt á þjónustu þar sem það kýs að búa og þar sem það á lögheimili. Það frelsi er ekki virt í reynd. Þar er verið að mismuna fólki meðan tugir bíða eftir NPA-þjónustu. Ég nefni þetta bara til að undirstrika að frelsi og jafnrétti er margs konar og sú meinta frelsisskerðing sem hér er til umræðu (Forseti hringir.) og hv. þingmaður telur að feli í sér sérstaka mismunun — ég er bara einhvern veginn ekki sannfærður um að þetta sé eitthvert sérstakt vandamál í íslensku samfélagi.