153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[15:47]
Horfa

Flm. (Óli Björn Kárason) (S) (andsvar):

Frú forseti. Það eru akkúrat forgangsréttarákvæðin sem gera það ákvæði stjórnarskrárinnar að tryggja fólki rétt til að standa utan félags, stofna félag eða vera í félagi í raun merkingarlaust á íslenskum vinnumarkaði. Það er greinilegt að mismunun er til staðar en hv. þingmaður telur að það sé eitthvert smáatriði og sé eitthvað sem ekki eigi að hafa áhyggjur af vegna þess að hann hefur ekki heyrt neinn kvarta undan því. Ég skal þá koma því til leiðar að hann heyri það, hann mun örugglega fá einhverjar kvartanir frá fólki. En látum það liggja á milli hluta.

Hér var líka minnst á greiðsluskylduna — og nota bene, ég gleymdi að taka það fram áðan að enginn þingmaður Sjálfstæðisflokksins hefur haldið því fram að það sé skylduaðild að íslenskum verkalýðsfélögum. Það eru bara fyrirsagnir einhverra fjölmiðla og hv. þingmaður veit að stundum endurspegla fyrirsagnir ekki alltaf efni málsins. Það er engin skylduaðild og ég rakti það mjög vel.

Ég vil spyrja hv. þingmann aðeins út í greiðsluskylduna, hún skiptir auðvitað líka máli. Hér er lögð greiðsluskylda á fólk sem stendur utan félags. Það er eitt. En það nýtur engra réttinda. Það greiðir jafn hátt gjald og þeir sem eru í félaginu en það nýtur engra þeirra réttinda sem félagsmenn njóta. Ef um þjónustugjald er að ræða — og það geta verið rök fyrir því að skylda eigi íslenskt launafólk til að greiða verkalýðsfélagi sem annast kjarasamninga eitthvert lágmarksþjónustugjald — þá getur það ekki verið jafn hátt og félagsgjaldið. Er hv. þingmaður tilbúinn í það? (Forseti hringir.) Getur hv. þingmaður svarað þessu: Af hverju telur hann nauðsynlegt að á íslenskum vinnumarkaði gildi aðrar reglur og íslenskt launafólk njóti lakari réttinda en félagar þeirra annars staðar á Norðurlöndum?