153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[15:50]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Iðgjöldin sem við ræðum hér fjármagna kjarnahlutverk stéttarfélaga, fjármagna vinnu við gerð kjarasamninga. Það er ekki rétt að aðrir en þeir sem tilheyra stéttarfélögunum njóti ekki þeirra réttinda sem í þessu felast og njóti ekki ábatans af þessu. Það er einmitt þannig að þessir kjarasamningar eru lágmarkskjör fyrir alla á vinnumarkaði, óháð félagsaðild. Hingað til hefur ekki verið litið á þessi iðgjöld sem brot gegn neikvæðu félagafrelsi. Hingað til hefur ekki verið litið sem svo á það í dómaframkvæmd að í þessum reglum felist einhver ólögmæt mismunun. Það er bara þetta sem ég var að reyna að koma að hér áðan. Ég tók það líka fram og get svo sem komið inn á það aftur að ég held að það sé alls konar annars konar frelsi sem við ættum að leggja meiri áherslu á í þessum sal að tryggja fólki en þetta ofboðslega afmarkaða neikvæða félagafrelsi í þessum tiltekna skilningi.

Gjaldið sem við erum hér að ræða hefur stundum verið kallað vinnuréttargjald. Eins og hv. þingmaður nefndi er kannski frekar hægt að líta á þetta sem þjónustugjald en félagsgjald. Allir launamenn njóta góðs af kjarasamningunum sem eru gerðir vegna þess að það er óheimilt að greiða lægri laun en kjarasamningar kveða á um. Aðild að félagi og greiðsluskylda eru ekki það sama, enda er þarna verið að greiða fyrir veitta þjónustu og fólk nýtur ábatans af þessu, hvort sem það tilheyrir félagi eða ekki.