félagafrelsi á vinnumarkaði.
Frú forseti. Hv. þingmanni verður tíðrætt um Mannréttindadómstól Evrópu og vitnar hér í mál í Danmörku, Sørensen og Rasmussen, og segir að það atriði sé annars konar forgangsákvæði. Það væri þá bara ágætt að fá aðeins nánari útskýringu á því þegar haft er í huga til hvers þetta leiðir. Forgangsákvæði eða greiðsluskylda þýðir, eins og færð eru rök fyrir í greinargerð, að í reynd er um skylduaðild að ræða. Það er það sem við erum að tala gegn hér. Ef hann gæti aðeins nánar reifað það hvernig það kemur ekki fram að það tiltekna forgangsákvæði, eða það sem er kallað á ensku „closed shop agreement“, ef hann er að vísa til mála í Bretlandi, sé í raun ekki ákveðin tegund af forgangsákvæði sem er mismunun, sem mismunar og sem tekur fyrir að einstaklingur geti haft samningsfrelsi eða samið um kaup og kjör. Það væri ágætt að heyra.
Ég vil líka draga það aftur fram, frú forseti, að þó að við séum hér að ræða um ákveðin grundvallaratriði þá skil ég ekki hvernig þau tilteknu atriði sem verið er að festa í sessi í íslenskum rétti, félagafrelsi, getur verið að höggva að rótum stéttarfélaga. Hv. þingmaður færir rök fyrir mikilvægi þessara félaga og segjum þá bara eins og er: Já, þessi félög hafa hlutverki að gegna og þau eru mikilvæg. Geta þau þá ekki bara staðið á eigin fótum? Þarf að þvinga fólk með slíkri mismunun sem fram kemur í löggjöf til að þau geti sinnt þessu hlutverki sínu í þágu félagsmanna?
Hv. þingmaður sagði í seinna andsvari sínu að frelsið væri margs konar. Nei, það er ekki rétt. Frelsi gegn mismunun og banni er bara mjög ákveðið. (Forseti hringir.) En mismunun og helsi, frú forseti, á sér margar birtingarmyndir eins og kom fram í máli hv. þingmanns.