153. löggjafarþing — 19. fundur,  18. okt. 2022.

félagafrelsi á vinnumarkaði.

24. mál
[15:58]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir þessar spurningar. Í fyrsta lagi gerir hann að umtalsefni dóminn í máli Sørensen og Rasmussen gegn Danmörku sem fór fyrir Mannréttindadómstól Evrópu og er frá 2006. Hér er því til að svara að þar var deilt um það sem hægt er að kalla útilokunarákvæði, „closed shop agreement“, og aðildarskyldu. Forgangsréttarákvæðin á Íslandi eru hins vegar bundin við það að hæfir félagsmenn bjóðist. Hér er það líka þannig að stéttarfélögum er skylt að veita þeim starfsmönnum sem atvinnurekandi ætlar að ráða í þjónustu sína inngöngu. Þetta skiptir máli í þessu samhengi.

Ég vil benda á skrif um þetta í Lögmannablaðinu þar sem Björg Thorarensen, prófessor í stjórnskipunarrétti og núverandi dómari við Hæstarétt, og Elín Blöndal fara yfir þennan dóm. Hvorug þeirra telur ástæðu til að ætla sérstaklega að hann hafi nokkra þýðingu hér á Íslandi. Ég vil líka minna á að Félagsdómur fjallaði sérstaklega um þetta og tók afstöðu til þess hvort þessi tiltekni dómur Mannréttindadómstólsins hefði einhverja þýðingu á Íslandi. Þetta var gert í máli nr. 7/2006 ef hv. þingmaður vill fletta því upp. Þar segir orðrétt, með leyfi forseta:

„Ekki verður talið að neinar breytingar varðandi túlkun í þessum efnum hafi orðið með greindum dómi Mannréttindadómstóls Evrópu frá 11. janúar 2006, enda reyndi þar á þýðingu aðildarskyldu og atvik því ekki hliðstæð.“

Þetta var afstaða Félagsdóms í þessu máli. Það er því í raun viðtekið sjónarmið í íslenskri réttarframkvæmd að forgangsréttarákvæði í frjálsum kjarasamningum aðila vinnumarkaðarins standist lög, standist stjórnarskrá og séu í samræmi við skyldur Íslands gagnvart samþykktum Alþjóðavinnumálastofnunarinnar.