félagafrelsi á vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér frumvarp frá þingmönnum Sjálfstæðisflokksins þar sem fjallað er um félagafrelsi á vinnumarkaði. Í frumvarpinu er lagt til að fella niður skylduaðild, eða ekki skylduaðild eins og hér hefur verið nefnt, en einnig að bannað verði að setja inn í ráðningarsamninga að vinnuveitandi geti bannað launþega að starfa hjá einum eða fleiri vinnuveitendum. Ég held að við séum öll sammála um að það geti verið til bóta en ég veit ekki til þess að vinnuveitandi hafi með nokkrum hætti heimild til að þvinga fólk til að vinna eingöngu hjá honum sjálfum. Ég held að það geti bara varðað við lög. Vinnuveitandi hefur í sjálfu sér ekki umráðarétt yfir launþega nema á þeim tíma sem hann er búinn að selja vinnu sína til viðkomandi vinnuveitenda. Það er því ekkert um það að ræða að vinnuveitandi geti sett þetta inn í samninga. Þeir eru bara ógildir ef svo er.
Hv. þingmaður nefndi breytingar á stjórnarskránni frá árinu 1995 þar sem var verið að styrkja stöðu mannréttinda í stjórnarskránni. Það liggur fyrir álit stjórnarskrárnefndar frá þeim tíma um þetta atriði. Með leyfi forseta ætla ég að fá að lesa það. Þetta er smákafli og þar stendur:
„Meginregla 12. gr. er sú að menn eiga rétt á að stofna félög í sérhverjum löglegum tilgangi. Enn fremur megi engan skylda til aðildar að félagi en þó megi víkja frá því ef það réttlætist af þeim aðstæðum sem greinin kveður á um. Í orðalagi fyrri málsliðar 2. mgr. felst að engan megi skylda til aðildar að félagi með lögum eða hvers kyns stjórnvaldsákvörðunum. Er því ekki verið að kveða á um það sem menn eru skyldaðir til að gera á grundvelli frjálsra samninga, þar á meðal kjarasamninga. Hvað varðar stéttarfélög og aðild að þeim er bent á að í núgildandi löggjöf eru launþegar ekki skyldaðir til þess að vera í stéttarfélagi. Í lögum um stéttarfélög og vinnudeilur, nr. 80/1938, er þvert á móti beinlínis gert ráð fyrir að launþegar geti verið utan stéttarfélaga. Því er í 2. mgr. 12. gr. ekki vikið að þeim aðstæðum er eiga við um stéttarfélög og þar af leiðandi ekki lagðar til með málsgreininni breytingar á reglum varðandi aðild manna að þeim. Sérstök ástæða er til að nefna að svonefnd forgangsréttarákvæði, þegar í kjarasamningum er samið um að félagsmenn viðkomandi stéttarfélags skuli hafa forgang til vinnu á félagssvæði þess, leiða ekki af sér félagsskyldu af þeim toga sem fyrri málsliður 2. mgr. tekur til. Þá verður heldur ekki litið svo á að umsamin skylda launþega til að greiða gjöld til stéttarfélaga sé félagsskylda af þeim meiði sem ákvæði þetta nær til.
Í ljósi þessa lítur nefndin svo á að með samþykkt frumvarpsins sé í engu verið að hrófla við núverandi réttarstöðu á vinnumarkaði að því er varðar forgangsréttarákvæði, greiðslu félagsgjalda eða önnur réttindaákvæði.“
Svo mörg voru þau orð.
Virðulegi forseti. Áður en ég held áfram langar mig nú bara að grípa inn í þetta út frá þeirri reynslu sem ég hef og segja frá því hvaðan ég kem. Ég var formaður stéttarfélags í 21 ár. Ég sat í miðstjórn ASÍ í 14 ár. Þetta kemur fram á alþingisvefnum ef einhver hefur lesið það sem um mig er skrifað þar. Ég var formaður Landssambands verslunarmanna í sex ár, sat í stjórn landssambandsins í 20 ár og var m.a. mikið í erlendum samskiptum. Og þegar því er haldið fram hér að staða íslenskra launamanna sé verri en launþega á öðrum Norðurlöndum þá er það bara hin mesta firra. Í Svíþjóð er staðan þannig að ef vinnuveitandi neitar að ræða við stéttarfélag þá verður bara enginn kjarasamningur og þá er launþeginn algerlega óvarinn. Eftir að þessi dómur var kveðinn upp í Danmörku hefur þátttaka í félögum hrunið þar. Í Bandaríkjunum, við vitum um ástandið þar, eru kannski 10% í stéttarfélögum. Hér erum við með 90% þátttöku í stéttarfélögum. Ef við skoðum þetta bara þá bjuggu forverar mínir innan verkalýðshreyfingarinnar til þessa gulrót. Það skiptir máli að vera í stéttarfélagi vegna þess að við greiðsluna á þjónustugjaldinu, eða félagsgjaldinu eða vinnuréttargjaldinu eða hvað sem við viljum kalla þetta, urðu til aukin framlög sem launþegahreyfingin samdi um við atvinnurekendur. Það var 1% framlag í sjúkrasjóð, það var samið um orlofsheimilasjóði, það var samið um starfsmenntasjóði, það var samið um starfsendurhæfingarsjóði sem reka m.a. VIRK. Við erum öfunduð alls staðar af þessu fyrirkomulagi, að við það að ganga í stéttarfélag öðlist launþeginn réttindi sem eru kjarasamningsbundin. Það er gulrótin sem íslenska verkalýðshreyfingin bjó til á sínum tíma og hefur gert það að verkum að það skiptir máli fyrir fólkið sem er á vinnumarkaði að greiða þetta tiltekna þjónustugjald, eða félagsgjald eða hvaðeina sem við viljum kalla þetta. Það er bara þannig að verkalýðshreyfingin annars staðar á Norðurlöndunum, hvort sem það er í Finnlandi, Svíþjóð eða Danmörku, öfundar íslenska verkalýðshreyfingu fyrir þá stöðu sem hér er, að við skulum vera með þátttöku upp á rúmlega 90% í stéttarfélögum.
Hér hefur verið nefnt að kjarasamningur er lágmarksréttur og það er bannað að greiða lægra en kjarasamningar segja fyrir um. Þetta kerfi hefur verið útbúið þannig að búa verður til kjarasamning utan um öll störf eða setja störfin undir kjarasamning. Hvað þýðir það? Það þýðir að launþeginn er þá varinn af þeim kjarasamningi sem hann tilheyrir. Og hver ver samninginn? Það er viðkomandi stéttarfélag. Það ber ábyrgð á því að atvinnurekendur sjái til þess að fólk njóti þeirra réttinda sem í kjarasamningnum felast. Það er skylda stéttarfélaganna að viðhalda síðan þeim kjarasamningi.
Mig langar að nefna dæmi um skyldu stéttarfélaga. Ég upplifði það sem formaður stéttarfélags að þurfa að takast á við atvinnurekanda sem neitaði að borga rétt laun. Ég þurfti að fara í mál vegna launa viðkomandi starfsmanns. Ég vann málið en stéttarfélagið varð fyrir milljóna skaða af því að málskostnaður var dæmdur miklu lægri en sá lögfræðilegi kostnaður sem varð til í málaferlunum. Stéttarfélaginu bar skylda til að fylgja eftir öllum þeim réttindum sem í kjarasamningnum fólust. Það er því ekki bara verið að henda einhverjum, eins og hér er nefnt, milljörðum inn í stéttarfélögin. Það er ekki þannig. Það sem er verið að setja inn í stéttarfélögin er þetta félagsgjald sem er verið að tala um, eða þjónustugjald eða vinnuréttargjald eða hvað sem við viljum kalla þetta. Það sem er að öðru leyti inni í stéttarfélögunum er sjúkrasjóðurinn, er starfsmenntasjóðurinn, er orlofsheimilasjóðurinn. Þetta er allt eign félagsmannanna. Í stéttarfélögunum erum við að tala um samtryggingu. Sjúkrasjóðirnir hjálpa til, eins og lífeyrissjóðirnir, við að styðja við fólk sem á t.d. lítinn veikindarétt á vinnumarkaði, hefur ekki öðlast mikinn veikindarétt. Það getur fengið veikindarétt í gegnum stéttarfélagið sitt. Svo eru aðrir sem verða sjaldan veikir, þeir þurfa ekkert að nýta þetta. Það er samtrygging í stéttarfélögunum sem félagslega sinnað fólk vill viðhalda.
Hér er líka talað um frelsi til að greiða í þann lífeyrissjóð sem við viljum en þar með erum við að fara að taka samtrygginguna út úr kerfinu. (Gripið fram í: Nei.) Það er bara þannig. Við erum með samtryggingu sem var búin til inni í stéttarfélögunum og í lífeyrissjóðakerfinu í frjálsum kjarasamningum. Hún hefur gert það að verkum að fólk sem er á vinnumarkaði með lítinn rétt er varið.
Ég verð að segja að þegar ég sá þennan lista yfir þá sem leggja fram þetta frumvarp, þennan hóp þingmanna sem leggur fram þetta frumvarp, einhverjir af þeim hafa tekið þátt í starfi atvinnurekendasamtaka sem hafa verið hluti af heildarsamtökum á vinnumarkaði, að það sé verið að leggja til að það eigi að slátra verkalýðshreyfingunni — ég bara næ ekki utan um þetta. Hefur það verið kannað hjá Samtökum atvinnulífsins eða Félagi atvinnurekenda hvaða skoðanir þeir hafa á þessu? Vilja Samtök atvinnulífsins t.d. hafa sundraða verkalýðshreyfingu? (Gripið fram í.) Vill Félag atvinnurekenda hafa þetta þannig að það þurfi að fara að semja við hvern og einn launþega? (BHar: Kemur í ljós í umsögnum.)Er það virkilega þannig? Ég held að verkalýðshreyfingin vilji ekki hafa sundraða atvinnurekendur. Það er bara eðlilegt að það sé skipulag á markaðnum, á því hvernig hlutirnir eru unnir. Við verðum að átta okkur á því að með því að hafa skipulag á markaði er verið að búa til rétt fólks og verja þennan rétt fólks.
Ég hélt nú einu sinni í bjartsýni að við værum alltaf að búa til aukin réttindi en ég sé núna að við verðum að verja réttindi vegna þess að til er fólk sem er tilbúið til að grafa undan þeim réttindum sem búið er að ná á íslenskum vinnumarkaði. Það er bara þannig. Ég lít þannig á að þetta sé aðför að launþegahreyfingunni á Íslandi, svokölluð gul stéttarfélög. Það nægir bara að nefna hvað gerðist þegar Play var stofnað. Það nægir að nefna það. Hvað gerðist? Þeir ætluðu sjálfir að stofna stéttarfélag. Þeir ætluðu að semja sjálfir um kjör, fólkið á gólfinu kom ekkert að því að semja samninginn, þeir ætluðu bara að búa hann til sjálfir. Er það þannig sem við viljum hafa þetta? Nei, ekki ég. Þess vegna ætlum við hv. þingmaður, því að við sitjum báðir í velferðarnefnd þar sem þetta kemur væntanlega til umræðu í framhaldinu, að takast á um þessar breytingar og ég mun að sjálfsögðu berjast hart gegn þeim breytingum.
Ég þekki það ekki, hafandi starfað í 21 ár innan launþegahreyfingarinnar, að forgangsréttarákvæði hafi einhvern tímann verið nýtt, aldrei, (Gripið fram í.)ég hef aldrei nýtt einhver forgangsréttarákvæði til að troða félagsmanni í starf. Ég held að allir hafi verið tilbúnir til að greiða þetta þjónustugjald, eða félagsgjald eða hvað við viljum kalla það, til að öðlast þau réttindi sem íslensk verkalýðshreyfing hefur búið til í gegnum aldanna rás með því að semja um aukin réttindi önnur en bara laun. Það felst í þessari samtryggingu sem búin var til inni í stéttarfélögunum og við eigum að viðhalda henni. Það sem verið er að gera hér að mínu mati er að grafa undan því kerfi sem við höfum nú þegar byggt upp. Vonandi tekst flutningsmönnum þessa frumvarps ekki að gera það. Vonandi tekst þeim ekki að gera það.
Ég hef verið fylgjandi því að það kæmu fram þingmannafrumvörp til að auka lýðræðislega virkni hér á Alþingi en ég mun berjast með kjafti og klóm gegn þessu frumvarpi.