félagafrelsi á vinnumarkaði.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég veit ekki hvað gerist ef þessi lög verða tekin úr gildi, lög nr. 55/1980, ef þau verða afnumin og þeim hent á haugana. Ég veit ekkert hvað gerist, hvort eftirsókn eftir því að vera í stéttarfélagi verði sú sama eða ekki, ég bara veit það ekki. Einhverra hluta vegna var ákveðið að gera þetta með þessum hætti, að atvinnurekendur myndu halda eftir þessum gjöldum til stéttarfélagsins til þess að viðhalda þeim kjarasamningi sem viðkomandi er að vinna eftir. Þannig var það, þannig urðu þessar þríhliða viðræður á Íslandi á milli atvinnurekenda og launþega og stjórnvalda. Við bjuggum til þetta samtalskerfi sem hefur virkað svo vel á Íslandi en er ekki til staðar í Evrópu. Það er til á Norðurlöndunum en það er ekki til staðar í Evrópu. Ég veit ekki hvað aðrir þingmenn Viðreisnar gera, ég kem ekki inn á þing til að vera bundinn á bás. Ég kem inn á þing til að standa með minni sannfæringu. Ég vonast auðvitað til þess að þingmenn aðrir í Viðreisn muni fylgja mér í þessu en ég kem ekki hér til þess að lýsa skoðunum annarra. Ég kem hér upp í pontu til að lýsa mínum skoðunum.
En, eins og ég segi, það er engin félagsaðild, þú getur farið í hvaða klúbb sem þú vilt, þú getur verið í Lions, þú getur verið í hverju sem er. Þú borgar bara þjónustugjald til þess stéttarfélags sem viðheldur kjarasamningi. Þannig er það bara. Stéttarfélagið hefur skyldur til að viðhalda kjarasamningi.